Leikfélag Mosfellssveitar frumsýndi um síðustu helgi rokksöngleikinn Vorið vaknar í leikstjórn Arons Martins Ásgerðarsonar og Elísabetar Skagfjörð. Fjölmennur hópur kemur að sýningunni, bæði á sviði og baksviðs, og hefur undirbúningur staðið yfir af krafti síðustu vikur.
Vorið vaknar er byggt á samnefndu þýsku leikriti Franks Wedekind frá árinu 1891. Steven Sater samdi söngleikinn en tónlistin er eftir Duncan Sheik. Verkið var frumsýnt á Broadway árið 2006 og vakti þegar mikla athygli. Það hlaut alls átta Tony-verðlaun, meðal annars sem besti söngleikur ársins.
Sagan fjallar um hóp ungs fólks sem glímir við unglingsárin í íhaldssömu samfélagi þar sem erfitt er að ræða opinskátt um tilfinningar, kynlíf og þær breytingar sem fylgja því að verða fullorðinn.
Ungmennin eiga að stórum hluta aðeins hvert annað að þegar þau reyna að átta sig á eigin líkama, huga og sjálfsmynd. Uppreisn, forvitni og frelsisþrá takast þar á við reglur og væntingar samfélagsins og afleiðingarnar verða bæði fallegar og sársaukafullar.
Tónlistin gegnir stóru hlutverki í sýningunni þar sem rokkið er fléttað saman við söguna og gefur rödd þeim tilfinningum sem persónurnar eiga erfitt með að tjá með öðrum hætti.
Mikill hópur Mosfellinga og annarra leikhúsáhugamanna kemur að uppsetningunni. Þrettán leikarar stíga á svið, sjö manna hljómsveit flytur tónlistina og um tuttugu manna baksviðsteymi sér um fjölbreytt verkefni sem þarf til að koma sýningu af þessari stærðargráðu á svið.
Vorið vaknar er þannig enn ein metnaðarfull uppsetning Leikfélags Mosfellssveitar og nýjasta viðbótin við öflugt áhugaleikhússtarf í bænum.
Miðasala á sýninguna fer fram á tix.is.
Ljósmyndir: Myndó