Ný sýning um sögu ullariðnaðarins og Álafosskvosar var formlega vígð laugardaginn 31. október að Álafossvegi 23. Um var að ræða vígsluathöfn sýningarinnar en verslunin, kaffihúsið og önnur starfsemi í húsinu verða opnuð almenningi innan skamms.
Sýningin er hluti af umfangsmiklum breytingum á húsnæðinu þar sem Álafossverslunin hefur lengi verið til húsa. Þar verður áfram verslun en jafnframt kaffihús, sýning um sögu ullariðnaðar á Íslandi og Álafosskvosar auk rýma fyrir námskeið, viðburði og aðra menningarstarfsemi.
Að verkefninu standa meðal annars bræðurnir Lárus og Hafsteinn Guðbjartssynir ásamt Ístex, sem á óvenju sterk og djúp tengsl við sögu ullariðnaðar í Mosfellsbæ.
Ístex er órjúfanlegur hluti þeirrar sögu sem sýningunni er ætlað að miðla. Ullarvinnsla hefur verið stunduð samfellt í Mosfellsbæ frá árinu 1896, áður undir merkjum Álafoss, en Ístex tók við starfseminni árið 1991. Fyrirtækið rekur í dag spuna- og bandverksmiðju í Mosfellsbæ, meðhöndlar um 99% allrar íslenskrar ullar og vinnur að því að skapa sem mest verðmæti úr henni. Þá eru rúmlega 80% fyrirtækisins í eigu íslenskra bænda og vörur þess seldar víða um heim.
Sarah Emma O’Neill mun stýra nýju versluninni og leiða daglegan rekstur hennar þegar starfsemin verður opnuð almenningi. Sarah Emma er frá Írlandi og hefur mikinn áhuga á ull, handverki og ullariðnaði.
Gagarín sá um hönnun sýningarinnar sjálfrar og hefur þar verið lögð áhersla á að miðla sögu svæðisins og ullariðnaðarins á lifandi og aðgengilegan hátt. Basalt Arkitektar komu hins vegar að forhönnun breytinga á húsnæðinu.
Uppbyggingin á sér nokkurn aðdraganda. Mosfellsbær og Desjamýri 11 ehf. undirrituðu viljayfirlýsingu um verkefnið með það að markmiði að varðveita og miðla sögu svæðisins og styrkja Álafosskvos sem menningar- og áfangastað.
Við breytingarnar hefur jafnframt verið lögð áhersla á að húsnæðið nýtist bæði nærsamfélaginu og gestum. Þar verður meðal annars aðstaða fyrir prjónanámskeið, barnahorn og fjölnota rými fyrir tónleika og aðra viðburði.
Vígslan 31. október markaði mikilvægan áfanga í verkefninu, þótt enn sé beðið eftir formlegri opnun allrar starfseminnar. Þegar verslun, kaffihús og sýning hafa verið opnuð að fullu verður til nýr áfangastaður í hjarta Álafosskvosar þar sem saga, handverk, menning og mannlíf mætast.