Það verður sannkölluð jólastemning í Mosfellsbæ laugardaginn 28. nóvember þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu á Miðbæjartorginu. Ljósatendrunin hefur um árabil verið ein af kærustu jólahefðum bæjarbúa og markar upphaf aðventunnar.
Hátíðin hefst kl. 15:30 þegar Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur jólalög inni í Kjarna. Klukkan 16:00 tekur við fjölbreytt dagskrá á Miðbæjartorginu þar sem börn úr forskóladeild Listaskólans og Barnakór Lágafellssóknar koma fram ásamt Árna Beinteini og Sylvíu, sem flytja Bestu lög barnanna.
Að sjálfsögðu er von á jólasveinum ofan úr Esju sem ætla að gleðja börnin og dansa með þeim í kringum jólatréð.
Að loknum jólatrésdansi færist hátíðin aftur inn í Kjarna þar sem Kvennakórinn Heklurnar syngur falleg jólalög. Afturelding sér síðan um að ylja gestum með heitu kakói, kaffi og nýbökuðum vöfflum.
Þetta er tilvalin stund fyrir alla fjölskylduna til að njóta samverunnar og taka forskot á jólagleðina.