Laugardagur, 21. nóvember 2026
Forsíða
Fréttir

Endurbætur við Álafoss að hefjast

Endurbætur við Álafoss að hefjast
2 mín. lestur
Facebook

Framkvæmdir við stoðvegg og útsýnispall við Álafoss hefjast í nóvember og munu standa út árið 2027. Ákvörðun um framkvæmdirnar var tekin eftir ástandsskoðun sem leiddi í ljós að núverandi stoðveggur við Varmá er orðinn óstöðugur og þarfnast endurnýjunar.

Bæjarráð samþykkti í byrjun september að ráðast í verkefnið, sem er hluti af stærri uppbyggingu í Álafosskvos. Samhliða er unnið að samstarfi um ullarsögusýningu í gömlu Álafossverksmiðjunni og er markmiðið að styrkja svæðið sem áfangastað fyrir bæði íbúa og ferðafólk.

Með endurbótunum á að bæta öryggi og aðgengi við Álafoss og Varmá og skapa betri aðstöðu til að upplifa náttúru og sögu svæðisins í sömu heimsókn.

Nýr stoðveggur reistur innan við þann gamla

Framkvæmdirnar taka til endurnýjunar stoðveggjar og endurbóta á pallinum við gamla Ullargólfið, meðfram verksmiðjuhúsunum við Álafossveg.

Nýr stoðveggur verður reistur um einum metra innan við núverandi vegg og verður verkið unnið frá pallinum. Þegar nýi veggurinn er fullgerður verður eldri veggurinn fjarlægður með stýrðum hætti til að koma í veg fyrir að hann falli í Varmá.

Vinnusvæðið verður girt af meðan á framkvæmdum stendur og verður aðgengi íbúa að húsnæði sínu tryggt. Reikna má með tímabundnu ónæði og aukinni umferð vinnuvéla á svæðinu meðan verkið stendur yfir.

Talið er að núverandi stoðveggur og pallur hafi verið reistir um 1960, samhliða byggingu ullarþvottastöðvar sem áður stóð við ána.

Við ástandsskoðun kom í ljós að efri brún veggjarins hallar í átt að Varmá, veggurinn hefur losnað frá steyptu plani og á nokkrum stöðum rennur áin undir hann. Vegna þessa var talið nauðsynlegt að ráðast í endurbætur.

Framvinda verksins og tímalengd einstakra verkþátta munu ráðast af veðri og aðstæðum á framkvæmdasvæðinu en stefnt er að því að ljúka verkinu á árinu 2027.

Birt í Mosfellingi 14. nóvember 2026.