Fimmtudagur, 26. nóvember 2026
Forsíða
Fréttir

Gert ráð fyrir 531 milljónar króna afgangi hjá Mosfellsbæ árið 2027

Gert ráð fyrir 531 milljónar króna afgangi hjá Mosfellsbæ árið 2027
1 mín. lestur
Facebook

Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2027 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn miðvikudaginn 11. nóvember. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu og áframhaldandi uppbyggingu í bænum.

Í fjárhagsáætluninni er lögð áhersla á ábyrgan rekstur í krefjandi efnahagsumhverfi, samhliða því að viðhalda góðri þjónustu við íbúa.

Áætlaðar rekstrartekjur Mosfellsbæjar á næsta ári nema rúmlega 25 milljörðum króna og rekstrargjöld tæplega 22,4 milljörðum. Gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur A- og B-hluta verði 531 milljón króna, þar af 266 milljónir í A-hluta bæjarsjóðs.

Veltufé frá rekstri er áætlað tæplega 2,3 milljarðar króna, eða 9% af heildartekjum, og skuldaviðmið bæjarins er áætlað 109% í árslok 2027.

Óbreytt útsvar en fasteignaskattur lækkar

Samkvæmt áætluninni verður útsvar áfram 14,97% en álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki lækkar lítillega, úr 0,190% í 0,187%. Almennt er gert ráð fyrir 2,5% hækkun gjaldskráa bæjarins.

Áætlað er að verja tæplega 4,4 milljörðum króna til fjárfestinga á árinu 2027.

Íbúar nálgast 14 þúsund

Mosfellsbær heldur áfram að vaxa og er gert ráð fyrir stöðugri íbúafjölgun á næstu árum. Samkvæmt forsendum fjárhagsáætlunarinnar er áætlað að íbúar bæjarins verði orðnir tæplega 14.000 á árinu 2027.


Birt í Mosfellingi 27. nóvember 2026.