Hilmar Gunnarsson tók við starfi bæjarstjóra Mosfellsbæjar í júní eftir sigur Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum. Hilmar er Mosfellingur í húð og hár og hefur um árabil verið áberandi í bæjarlífinu, meðal annars sem ritstjóri Mosfellings, framkvæmdastjóri bæjarhátíðarinnar Í túninu heima og umsjónarmaður félagsheimilisins Hlégarðs.
Hilmar er fæddur 20. maí 1982. Foreldrar hans eru Kristín Davíðsdóttir kennari og Gunnar Rúnar Magnússon rennismiður.
Hann á tvö eldri systkini, Davíð Rúnar, f. 1973, og Ragnheiði, f. 1978.
Gott að alast upp í Mosó
Hilmar er uppalinn í Mosfellsbæ. Hann er giftur Oddnýju Þóru Logadóttur, kennara við Helgafellsskóla, og saman eiga þau þrjá syni. Kristófer er 15 ára og hefur gengið í Klettaskóla en Logi, 11 ára, og Kári, 7 ára, eru í Lágafellsskóla.
„Það var gott að alast upp í Mosó. Mamma og pabbi byggðu sér hús í Stórateig fyrir meira en 50 árum og búa þar enn. Við krakkarnir lékum okkur í gilinu fyrir neðan götuna og stálumst inn í gömlu braggana sem þar voru. Krakkarnir í Teigunum þekktust vel og brölluðu ýmislegt skemmtilegt. Við söfnuðum í áramótabrennu og fórum árlega í blysför úr götunni og upp í fellshlíðina þar sem Krikahverfi stendur nú.“
Fótbolti og lúðrablástur
„Lífið snerist mikið um fótbolta á mínum yngri árum og ég missti varla úr æfingu með Aftureldingu. Ég spilaði líka á trompet í lúðrasveitinni í mörg ár. Þar voru það bræðurnir Lárus og Birgir D. Sveinssynir sem höfðu mest áhrif á tónlistarlegt uppeldi. Hljómsveitin ferðaðist vítt og breitt og eftir sitja margar góðar minningar. Þónokkrir úr hópnum spila enn í dag og halda áfram að hittast.
Á þessum tíma var aðeins einn grunnskóli í Mosfellsbæ, Varmárskóli, þar sem Birgir skólastjóri réð ríkjum. Síðan tók gagnfræðaskólinn hjá Ragnheiði Ríkharðs við. Þetta voru góðir og eftirminnilegir tímar, með frábærum kennurum og góðum félögum. Margar af þeim minningum og vináttuböndum sem þar urðu til fylgja mér enn í dag.“
Með puttann á púlsinum
Á unglingsárunum varði Hilmar mörgum stundum á Kjuðanum hjá Kalla Tomm. Þar var spilaður snóker og fórst sú íþrótt honum vel úr hendi. Knattborðsstofan var í kjallaranum í Kjarnanum og fljótlega tókst góður vinskapur með þeim Kalla sem hefur varað alla tíð.
„Ég tók við bæjarblaðinu Mosfellingi úr höndum Kalla og ritstýrði því í tvo áratugi. Það er ákveðinn lífsstíll að fylgjast svona náið með samfélaginu sem maður býr í í svona langan tíma. Starfinu fylgdi að mæta á viðburði, hitta fólk og vera stöðugt með puttann á púlsinum. Að halda utan um blaðið var í senn skemmtilegt og krefjandi.“
Hilmar var 23 ára þegar hann tók við keflinu. Eftir nám við Menntaskólann við Sund lá leið hans til Þrándheims í Noregi, þar sem hann lærði grafíska hönnun. Að námi loknu tóku fjölmiðlarnir við.
„Ég byrjaði í umbrotinu á DV, vann síðar á Blaðinu og 24 stundum og svo Morgunblaðinu. Í Hádegismóum starfaði ég á ýmsum deildum sem tengdust uppsetningu blaðsins en eftirminnilegasti tíminn var líklega árin sem ég var framleiðslustjóri fylgiblaðsins Monitor. Bæjarblaðið vann ég þó alltaf með í frítímanum enda var það sérstakt áhugamál.“
Að fagna litlu sigrunum
Elsti sonur Hilmars og Oddnýjar, Kristófer, er fæddur með litningagalla sem nefnist Ring 18. Hann er sá eini á Íslandi sem vitað er um með heilkennið.
„Hann talar ekki og er mikið þroskaskertur. Það er auðvitað ein af stóru áskorunum lífs okkar en við elskum hann eins og hann er og fögnum hverju litlu framfaraskrefi á lífsleiðinni. Líf okkar breyttist þegar Kristófer kom í heiminn. Hann hefur kennt okkur að horfa öðruvísi á lífið, fagna litlu sigrunum og taka ekki öllu sem sjálfsögðum hlut. Þarfir drengjanna okkar þriggja eru ólíkar og á heimilinu er því oft mikið líf og fjör. Við eigum gott fólk að og fötlun Kristófers kemur ekki í veg fyrir að við fjölskyldan njótum lífsins og eigum saman gleðistundir.“
Látið sig samfélagið varða
Í gegnum tíðina hefur Hilmar verið virkur í félagsstarfi og bæjarlífinu í Mosfellsbæ. Auk þess að reka Mosfelling í 20 ár hefur hann haldið utan um bæjarhátíðina Í túninu heima og félagsheimilið Hlégarð undanfarin ár.
„Ég hef látið mig samfélagið varða og reynt að taka þátt í því af fullum krafti. Í dag er ég í félagsskap sem heitir Fálkarnir en hef einnig verið í Hvíta Riddaranum og þorrablótsnefnd Aftureldingar. Þá vann ég á Pizzabæ í gamla daga og á Barion fyrir ekki svo löngu. Það hefur því ýmislegt verið brallað í gegnum tíðina,“ segir Hilmar og brosir.
Starfinu fylgir mikil ábyrgð
Eftir tvo áratugi með bæjarblaðið fannst Hilmari kominn tími til að taka næsta skref.
„Ég tók þá ákvörðun að bjóða mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í byrjun árs. Það gekk svona glimrandi og í kjölfarið varð til flottur listi sem sigraði í kosningunum í vor.“
Hilmar tók við starfi bæjarstjóra Mosfellsbæjar 3. júní. „Þetta er ótrúlega spennandi starf og ég er afar þakklátur fyrir þann stuðning sem ég fékk til að takast það á hendur. Starfinu fylgir mikil ábyrgð og ég mun leggja mig fram af heilindum í þágu allra bæjarbúa. Ég er svo sannarlega með gott fólk í kringum mig og saman ætlum við að gera okkar allra besta í þágu íbúanna.
Enn finnst mér hálfóraunverulegt að vera kominn í þessa stöðu en það á kannski eftir að venjast með tímanum. Eldskírnin kom með minkafárinu í Mosfellsdal sem ég held að okkur hafi tekist að takast á við með sóma.“
Stöndum vörð um sérstöðu bæjarins
Hilmar segir spennandi tíma fram undan í Mosfellsbæ og hlakkar til að leggja sitt af mörkum við að móta framtíð bæjarfélagsins. „Nú fáum við tækifæri til að setja okkar mark á sveitarstjórnarmálin og hafa áhrif á hvernig Mosfellsbær þróast á næstu árum. Þar viljum við standa vörð um sérstöðu bæjarins um leið og við horfum fram á veginn. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum ásamt öflugu fólki, fyrir heimabæinn.“
Fram undan er bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima. Hilmar hvetur Mosfellinga til að taka virkan þátt í hátíðinni og njóta þess að eiga saman skemmtilegar stundir í heimabænum.







