Fimmtudagur, 26. nóvember 2026
Forsíða
Viðtöl

Náttúran nærir mann og styrkir

6 mín. lestur
Facebook

Gísli Páll Davíðsson er mikill náttúruunnandi og nýtur útivistar til hins ýtrasta. Fyrir honum er hún ekki aðeins leið til að halda sér í formi, heldur órjúfanlegur hluti af daglegu lífi. Hvort sem Gísli Páll er á göngu um fjöll og firnindi eða nýtur kyrrðarinnar í náttúrunni sækir hann þangað bæði orku og innblástur. Hann hefur verið ötull við að vekja athygli á einstakri og fallegri náttúru í sínum heimabæ, ekki síst fellunum hér í kring og fjölbreyttum göngu- og hlaupaleiðum.

Gísli Páll fæddist í Reykjavík 5. nóvember 1974. Foreldrar hans eru þau Guðlaug Gísladóttir, fyrrv. starfsmaður Álafoss og ÁTVR, og Davíð Guðmundsson rafvirki. Uppeldismóðir er Eygló Gísladóttir meinatæknir.

Systkini Gísla Páls samfeðra eru Gunnhildur, f. 1974, Jórunn Eva, f. 1981, Örn, f. 1990, og tvíburarnir Þór og Orri, f. 1991. Sammæðra eru Eygló Svava, f. 1974, Sigrún Ragna, f. 1986, og Grétar Snær, f. 1989.

Forréttindi að alast hér upp

„Ég flutti í Mosfellssveit þegar ég var tveggja ára og bjó fyrstu árin mín á Stórateigi. Það var alltaf mikið líf og fjör hjá okkur krökkunum á Teigunum. Við lékum okkur mikið á stóra pallinum við hitaveitustokkinn. Þar hafði verið útbúinn stór fleki og við skiptumst á að vera á honum. Við fjölskyldan færðum okkur svo um set í Markholt og þaðan í Grundartanga. Það voru sannkölluð forréttindi að alast upp hér í sveitinni, umhverfið stórfenglegt og sjálf náttúran leikvöllur okkar krakkanna.“

Þetta gat oft verið hættulegt

„Þegar ég og Eyþór Einarsson, vinur minn, vorum ungir að árum höfðum við mjög gaman af því að fara í göngutúra og tína svartbaks- og fýlsegg á Lágafelli og í klettunum í Úlfarsfelli. Þetta gat oft verið hættulegt, þar sem við klifruðum í bröttum hlíðunum, en við sluppum sem betur fer við meiðsl, því við vorum varkárir. Við seldum síðan eggin til að eiga fyrir bíóferðum og eignuðumst marga fasta viðskiptavini. Þetta voru virkilega skemmtileg ár,“ segir Gísli Páll og brosir.

„Það var einnig gaman að starfa með Jónda, vini mínum, hjá Reykjagarði. Við gengum í öll störf, settum egg í útungunarvélar, tíndum egg og mokuðum út úr hænsnahúsunum. Lyktin af okkur félögunum var ekki góð eftir moksturinn en við vorum löngu hættir að finna hana. Einn daginn ákváðum við að skreppa í Snæland video og fá okkur hádegismat en þar var okkur einfaldlega bent á hvar útidyrnar væru,“ segir Gísli Páll og hlær.

Fóru saman í heimsreisu

„Ég og móðir mín fórum saman í fjögurra mánaða heimsreisu, ferð sem ég mun seint gleyma. Við hófum ferðina í London og héldum þaðan til Singapore með millilendingu í Bangkok. Þaðan lá leiðin til Ástralíu og síðan áfram til Nýja-Sjálands þar sem við dvöldum lengst, eða í 7 vikur.

Í Bandaríkjunum byrjuðum við í Hawaii, fórum þaðan til San Francisco og síðan lá leið okkar í Yosemite-þjóðgarðinn. Við enduðum ferðina í Florída og fórum í alla helstu skemmtigarðana. Þegar ég kom heim sögðu vinir mínir við mig að litli Gísli hefði farið út í þessa ferð en stóri Gísli hefði komið til baka; ég hafði greinilega tekið mikinn vaxtakipp,“ segir Gísli Páll og brosir.

Eiginkona Gísla Páls er Þórey Una Þorsteinsdóttir, hársnyrtir og innkaupastjóri hjá heildversluninni Regalo. Þau eiga þrjú börn: Alexander Davíð, f. 1995, Þorstein Einar, f. 1998, og Sóleyju Rós, f. 2003. Fjölskyldunni finnst fátt skemmtilegra en að ferðast og upplifa nýja hluti.

Fluttu til Svíþjóðar

Árið 2003 fluttu þau til Svíþjóðar, til Alafors, sem er lítill bær rétt fyrir utan Gautaborg. Þangað fluttu þau fjögur en fimmti fjölskyldumeðlimurinn fæddist nokkrum mánuðum síðar.

„Það var gott að búa í Svíþjóð, allt var mun rólegra og fjölskylduvænna en á Íslandi. Það var samt erfitt að vera aðeins fjölskyldan á nýjum stað, langt frá ættingjum og vinum, en við vorum fljót að kynnast Íslendingum á svæðinu. Við kynntumst einnig Svíum sem urðu eins konar staðgengilsfjölskylda okkar, sem var yndislegt.

Við byggðum okkur hús þarna úti og lóðin var við enda götunnar, alveg við skógarjaðarinn. Það var algengt að sjá alls kyns dýr ráfa um garðinn. Einn daginn kom til dæmis elgur. Maður gerir sér ekki grein fyrir því hversu stórir þeir eru fyrr en maður sér þá með eigin augum.

Eftir tíu ár vildu börnin flytja aftur heim til Íslands, í Mosó, og við foreldrarnir fylgdum þeim auðvitað,“ segir Gísli Páll og brosir.

Við sem búum hér erum heppin

Gísli Páll er sannur náttúruunnandi og ötull útivistarmaður. Áhugamál hans tengjast öll, á einn eða annan hátt, útiveru. Hann hefur alltaf haft gaman af skotveiði, stangveiði og golfi. Um árabil var hann í Björgunarsveitinni Kyndli og segir það tímabil hafa verið bæði lærdómsríkt og gefandi.

„Náttúran hér í Mosfellsbæ er engri lík. Við sem búum hér erum heppin, með fellin öll hér í kring og fjölbreyttar göngu- og hlaupaleiðir. Ég hvet alla sem hafa ekki kynnt sér þessar leiðir til að gefa sér tíma til að gera það. Ég get ekki hætt að dásama þessi svæði,“ segir Gísli Páll og brosir.

„Ég hleyp mikið hér um fjöll og firnindi með félögum mínum og veit fátt betra. Það er bara eitthvað við það að vera úti við og finna fyrir veðráttunni. Náttúran nærir mann, styrkir og gefur manni svo mikinn innblástur.“

Ákváðum að láta slag standa

Gísli Páll hefur víðtæka reynslu af byggingageiranum, bæði hérlendis og erlendis. Hann starfaði hjá Eykt við nýsmíði og viðhald, rak sitt eigið fyrirtæki í Svíþjóð um tíu ára skeið og starfaði einnig hjá stóru mótafyrirtæki áður en hann flutti aftur heim til Íslands.

„Ég rek í dag fyrirtækið SG verk ásamt félaga mínum, Sigurði Sumarliða. Við stofnuðum fyrirtækið árið 2020, í miðju Covid-tímabilinu. Það var kannski ekki besti tíminn til að stofna fyrirtæki en við sáum tækifæri og ákváðum að láta slag standa.

Í byrjun vorum við aðeins tveir en í dag starfa hjá okkur 13 manns. Við höfum sinnt bæði nýbyggingum og viðhaldsverkefnum og um þessar mundir þjónustum við þrjú stór fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Nú er sumarið fram undan og við horfum björtum augum til næstu verkefna,“ segir Gísli Páll að lokum þegar við kveðjumst.

HIN HLIÐIN
Hvað keyptir þú síðast fyrir heimilið?
Rjómasprautu til að geta gert hinn full
komna Amaretto Sour-kokteil.
Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki um?
Ég er algjör nammigrís.
Draumaborgin? Róm.
Hvað hefur haft mest áhrif á líf þitt?
Konan mín.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
hefur gert? Það er erfitt að gera upp á
milli því ég hef gert svo margt skemmtilegt
en heimsreisan með mömmu held ég að
hafi vinninginn.
Hvað er það versta sem þú hefur
bragðað? Þakkargjörðargraskersbaka,
hún ilmaði vel en smakkaðist illa.
Best fyrir líkama og sál? Hreyfing, hlaup
með félögunum.
Fyrsta minningin? Þegar ég festist í drullu
í Teigunum og allir komu út að leita að mér.
Fannst svo raddlaus því ég var búinn að
öskra svo lengi. Var dreginn upp en stíg
vélin fundust aldrei.

Birt í Mosfellingi 25. maí 2026.