Þóra Jónasdóttir er fyrsta konan sem skipuð hefur verið yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þóra Jónasdóttir býr yfir áratuga
reynslu af lögreglustarfi en hún hóf störf árið 1986. Hún starfaði lengi við almenna löggæslu og sinnti einnig hlutverki varðstjóra. Þóra var skipuð aðstoðaryfirlögregluþjónn árið 2015 og stýrði lögreglustöðinni í Kópavogi frá þeim tíma og fram til ársins 2024.
Á dögunum var Þóra skipuð yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún er fyrsta konan sem gegnir embættinu hjá lögreglunni og markar skipunin því ákveðin tímamót.
Þóra fæddist í Kópavogi 1. september 1966. Foreldrar hennar eru Oktavía Stefanía Helgadóttir fyrrv. verslunarkona og Jónas Jón Hallsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Reykjavík. Systkini Þóru eru Karl Helgi, f. 1965, Sandra, f. 1968 og Hallur, f. 1978.
Fórum ríðandi til messu
„Ég bjó fyrstu ár ævi minnar í Skerjafirði, en fjölskyldan flutti síðan í Breiðholtið. Þar bjuggum við í fimm ár en um tíu ára aldur fluttum við í Mosfellssveit. Heilt yfir á ég góðar æskuminningar frá öllum þessum stöðum. Í Skerjafirði lékum við okkur mikið úti, við gátum einnig tínt rabarbara sem óx villtur í nágrenni við heimili mitt. Í Breiðholti átti ég góð ár og það var gott að alast upp þar.
Æskuárin í Mosfellssveit voru frábær. Ég man að þá var ekki búið að byggja á svæðinu þar sem Tangarnir eru í dag. Þar var hlaða sem við krakkarnir stálumst oft inn í til að hoppa í heyinu. Einnig var farið í útileiki fram á kvöld, en því miður sést allt of lítið af því nú á tímum. Á þessum árum eignaðist ég mínar bestu vinkonur og við hittumst reglulega, sem er dýrmætt. Fjölskylda mín átti hesthús í hesthúsahverfinu og ég á góðar minningar tengdar hestamennskunni. Það var gaman að ríða út á Leirunum og líka að fara í hina árlegu ferð til messu í Mosfellskirkju.“
Nóg að gera á öllum vígstöðvum
„Ég gekk í Fellaskóla og á góðar minningar þaðan. Þar var mikið af krökkum og mikið líf og fjör. Ég man eftir að hafa lært þjóðdansa hjá einum kennara minna, sem var virkilega gaman. Þegar við fluttum í Mosfellssveitina var bara einn skóli, Varmárskóli. Þar var ekki minna fjör en í Fellaskóla, nóg að gera á öllum vígstöðvum. Að grunnskóla loknum lá leið mín í Gaggó Mos. Það voru góð ár, mikið að læra og nóg að gera í félagslífinu og öllu því sem unglingsárunum fylgdi. Mér fannst almennt mjög fínt í skólanum en eins og öðrum fannst mér þó alltaf gaman þegar sumarið kom og önnur skemmtileg verkefni tóku við. Ég starfaði á róluvellinum við Njarðarholt, í unglingavinnunni og versluninni Vínberinu.“
Á sólarhringsvöktum í 28 ár
Eftir útskrift úr gagnfræðaskóla fór Þóra í Hússtjórnarskólann að Varmalandi í Borgarfirði. Þaðan fór hún í Kvennaskólann og Iðnskólann í Reykjavík. Þóra hóf störf sem lögreglumaður hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík árið 1986, samhliða námi í Lögregluskóla ríkisins. Hún útskrifaðist sem lögreglumaður 1988 og hélt áfram störfum í almennri löggæslu á útkallsbifreiðum. Hún reyndi einnig fyrir sér í rannsóknarstörfum í rannsóknardeild árið 1991. „Ég starfaði í nokkur ár á lögreglustöðunni í Mosfellsbæ. Það gat oft á tíðum verið mjög krefjandi en jafnframt gefandi,
þar sem útköllin gátu verið að öðrum toga en til að mynda í Reykjavík. Varðsvæðið náði inn í Hvalfjarðarbotn og upp á Mosfellsheiði. Í heildina starfaði ég í 28 ár á sólarhringsvöktum og sinnti almennum útköllum. Eftir sameiningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu starfaði ég á árunum 2009- 2015 á lögreglustöðinni við Vínlandsleið
(Árbær, Grafarvogur, Grafarholt og Mosfellsbær) sem varðstjóri á vöktum og leysti einnig af sem aðalvarðstjóri. Á árunum
2015-2024 var ég stöðvastjóri á lögreglustöðinni við Dalveg, þar sem ég stýrði almennri löggæslu og rannsóknardeild.“
Skoðum fallega landið okkar
Eiginmaður Þóru er Guðmundur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn. Börn þeirra eru Kristófer Fannar, lögfræðingur,
f. 1991, og Ásdís Dröfn, læknir, f. 1997. Barnabörnin eru fjögur: Dalrós Maren, Emilía Metta, Aþena Myrra og Jara Dís.
„Ég veit ekkert betra en að vera með fjölskyldunni minni. Við reynum að vera saman eins mikið og mögulegt er. Annars hef ég mjög gaman af hjólreiðum, gönguferðum, golfi og að ferðast um heiminn. Á sumrin förum við í útilegur og skoðum fallega landið okkar.“
Markmiðið er að samhæfa aðgerðir
Haustið 2024 tók Þóra við verkefnum hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu með áherslu á málefni barna, þvert á allar deildir embættisins. Hún hefur meðal annars yfirsýn yfir þær rannsóknir sem koma inn á borð, með það að leiðarljósi að flýta afgreiðslu þeirra þegar þess er kostur. „Ég stýri samfélagslöggæslunni og hef, í samstarfi við fagaðila, unnið að því að koma á svæðisbundnu samráði á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að samhæfa aðgerðir til að styðja við markmið farsældar- og barnaverndarlaga, auk þess að tryggja eftirfylgni í heimilisofbeldismálum.“
Ég brenn fyrir þessum málaflokkum
Í mars síðastliðnum var Þóra skipuð yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún er fyrsta konan sem gegnir stöðunni hjá embættinu og markar það því ákveðin tímamót. Þóra mun stýra farsældarsviði en undanfarin tvö ár hefur hún sinnt verkefnum sem snúa að málefnum barna og ungmenna ásamt þeim málaflokkum sem taldir eru upp hér að ofan.
Hún mun jafnframt sitja í framkvæmdastjórn embættisins. „Ég brenn fyrir þessum málaflokkum sem heyra undir þetta nýja svið og þess vegna sótti ég um stöðuna,“ segir Þóra. „Við viljum efla farsæld og öryggi barna og ungmenna, tryggja barnvæna nálgun við meðferð og rannsókn mála og stuðla að snemmtækri íhlutun og öflugum forvörnum. Þetta gerum við í nánu og góðu samstarfi við sveitarfélögin, Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu, skóla og heilbrigðis- og velferðarþjónustuna.“ Þóra vill einnig vekja athygli á heimasíðu Neyðarlínunnar, 112.is, þar sem finna má fjölbreyttar upplýsingar og annað fróðlegt efni.
Fékk kakó í hverri heimsókn
Ég spyr Þóru að lokum hvers vegna hún hafi valið sér að starfa sem lögreglumaður? „Það var út af föður mínum. Hann hóf störf hjá lögreglunni árið 1968 og starfaði þar alla starfsævina. Ég heimsótti hann oft á lögreglustöðina og sá að um var að ræða spennandi starf og skemmtilegt samstarfsfólk. Það skemmdi heldur ekki fyrir að maður fékk kakó í hverri heimsókn, sem hafði töluverð áhrif á val mitt á ævistarfi,“ segir Þóra og hlær þegar við kveðjumst.

