Mosfellingur
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail

Viðskipti eru mín ástríða

28. september, 2026

Hermann og Svava Gunnarsdóttir í Winter Park í Florida

   Hermann S. Guðmundsson framkvæmdastjóri hefur víðtæka reynslu af íslensku atvinnulífi og er þekktur fyrir beinskeytta sýn. Hann hefur gegnt fjölda ábyrgðarstarfa og setið í stjórnum fyrirtækja og samtaka á ólíkum sviðum um langt árabil.   

Hermann er í dag framkvæmdastjóri og annar af tveimur eigendum fyrirtækisins Kemi. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á iðnaðarvörum, olíuvörum og bílavarahlutum. Auk þess rekur fyrirtækið tvö verkstæði sem sérhæfa sig í rúðuskiptum.

Hermann fæddist í Reykjavík 20. janúar 1962. Foreldrar hans eru Soffía Jóhannesdóttir verslunarmaður og Guðmundur Dalmann Ólafsson vélvirki, d. 1978. 

Systkini Hermanns eru Sigurlaug Björk prentsmiður, f. 1956, og Ívar útvarpsmaður, f. 1966.

 

Hjólið vakti mikla lukku 

„Ég man fyrst eftir mér í Vesturbænum en áður höfðum við fjölskyldan búið í Mosgerði, Sólheimum og um tíma í Skerjafirði. 

Ég man sérstaklega eftir vorinu 1968 þegar foreldrar mínir gáfu mér splunkunýtt reiðhjól. Frændi minn hafði keypt hjólið erlendis og það vakti mikla lukku. Ég man enn hversu spenntur ég var. Oft vaknaði ég eldsnemma til að geta hjólað hring í Skerjafirði áður en ég fór í skólann. Þarna kviknaði líklega bíla- og hjóladellan sem hefur fylgt mér allar götur síðan,“ segir Hermann og brosir. 

 

Dorgaði á bryggjunni

„Við fjölskyldan fluttum síðan á Hringbraut og ég byrjaði í Melaskóla. Þar voru allir KR-ingar og ég mætti á nokkrar fótboltaæfingar. Þetta voru skemmtilegir tímar og mikið úrvalsfólk í skólanum.  

Við fluttum síðan á Norðurstíg og þá fór ég í Öldugötuskóla þar sem ég tók 8 og 9 ára bekk. Ég átti afar góðan tíma þar líka og kynntist mörgu góðu fólki sem ég hef þekkt allar götur síðan. Frítíminn fór í fótbolta eða að dorga á bryggjunni við Hamarshúsið.“

Í Skerjafirði 1969

 

Breiðholtið stórkostlegur staður

„Árið 1972 fluttum við í Fellahverfið í Breiðholti og þar bjó ég næstu fimmtán árin. Þetta var stórkostlegur staður til að alast upp á. Þarna voru mörg hundruð krakkar saman og stöðugt líf og fjör. Breiðholtið var í mikilli uppbyggingu á þessum árum og nánast á hverjum degi fluttu nýjar fjölskyldur í hverfið.  

Ég var í hópi þeirra fyrstu sem fóru í Fellaskóla. Skólaganga mín var alltaf ánægjuleg og mér gekk vel að læra, fann aldrei fyrir neinu andstreymi. Í skólanum var kennari sem hét Alexander Jóhannesson. Hann hafði mikil og góð áhrif á æsku mína. Við skólasystkinin þurftum að taka 10 ára bekk í Hólabrekkuskóla sem var miklu settlegri en Fellaskóli og við komumst ekki upp með neinn galsagang. Þarna voru margir eftirminnilegir kennarar og nemendur. 

Á unglingsárunum tók ég flest þau sumarstörf sem í boði voru. Ég vann meðal annars í Kron í Eddufelli, sem sendill hjá Landssmiðjunni og á Tímanum. Þess á milli var fótboltinn fyrirferðarmikill.“

 

Frá þjónustu til forystu

Eftir útskrift stefndi Hermann á að verða vélvirki og hóf nám í vélsmíði. Hann komst þó fljótlega að því að námið hentaði honum ekki. Hann ákvað því að snúa sér að þjónustustörfum, hóf nám til þjóns á Hótel Holti og starfaði sem þjónn í sjö ár. Síðar færði hann sig yfir í sölumennsku og seldi bæði matvörur og skipafrakt. 

Árið 1994 stofnaði Hermann, ásamt félögum sínum, heildsölufyrirtækið Slípivörur og verkfæri ehf. Fyrirtækið sameinaðist síðar Bílanausti og tók Hermann við starfi framkvæmdastjóra. Þegar stærstu hluthafar Bílanausts keyptu Olíufélagið Esso var Hermann ráðinn forstjóri félagsins. Á þeim tíma störfuðu 650 manns hjá fyrirtækinu en reksturinn óx hratt og fljótlega voru starfsmenn orðnir rúmlega þúsund talsins. Undir stjórn Hermanns var ráðist í umfangsmiklar breytingar þegar Olíufélagið var sameinað nokkrum félögum og úr varð N1, eitt stærsta þjónustu- og verslunarfyrirtæki landsins á sínu sviði. 

Árið 2011 gekkst félagið undir fjárhagslega endurskipulagningu sem leiddi til breytinga á eignarhaldi þess. Hermann lét af störfum hjá félaginu árið 2012 eftir sex ár í forstjórastólnum. 

Á Florida Brynja Dögg, Daníel, Unnur Eva, Hermann, Emma, Svava, Malín og Oliver

 

Sinna áhugamálum af kappi

Eiginkona Hermanns er Svava Gunnarsdóttir sem heldur úti síðunni Ljúfmeti og lekkerheit, sem hefur notið mikilla vinsælda. Þau giftu sig í Lágafellskirkju árið 2021.

Börn Hermanns eru Helena, f. 1988, Daníel, f. 1991, og Harpa, f. 1999. Börn Svövu eru Malín, f. 1998, og tvíburarnir Jakob Þór og Gunnar Berg, f. 2002. Barnabörnin eru sex. 

Hjónin leggja mikla áherslu á að rækta ástina og hjónabandið og lifa eftir þeirri reglu að hafa gaman sjö daga vikunnar. Þau stunda líka golf af kappi og hafa einnig mjög gaman af því að ferðast.  

Hermann er líka mikill bílaáhugamaður og hefur áhuginn fylgt honum jafnt í starfi sem einkalífi. Hann hefur einnig látið til sín taka í stjórnum íþróttafélaga og tekið þátt í stjórnmálum, meðal annars með því að sinna verkefnum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. 

 

Nýtur þess að vinna með öflugu fólki

Hermann hefur mikla ánægju af því að fylgjast með viðskiptalífinu og talar við marga úr þeim hópi, innanlands sem utan. „Viðskipti hafa alltaf verið mín ástríða og það hefur aldrei breyst. Ég nýt þess enn að takast á við ný verkefni og vinna með öflugu fólki að sameiginlegum markmiðum. Það sem hefur kannski breyst frá því ég fór inn á vinnumarkaðinn eru nýjar atvinnugreinar og ég get nefnt nokkrar sem skipta orðið máli: lyfjaframleiðsla og lyfjaþróun, hugbúnaðargerð og tölvuleikjasmíði, orkuvinnsla og miðlun, ferðaþjónusta og baðlón, kvikmyndagerð, fata- og skóhönnun, gagnaver og gríðarleg þróun í vinnslu sjávarafurða.“

Hermann S. Guðmundsson

 

Horfir bjartsýnn til framtíðar

Árið 2014 keypti Hermann, ásamt fleirum, fyrirtækið Kemi og hefur rekið það síðan. Í dag er hann annar af eigendum fyrirtækisins en það sérhæfir sig í innflutningi og sölu á iðnaðarvörum, olíuvörum og bílavarahlutum. Auk þess rekur fyrirtækið tvö verkstæði sem sérhæfa sig í rúðuskiptum.

Undir stjórn Hermanns hefur Kemi vaxið mikið á undanförnum árum. Það hefur tekist með auknu vöruúrvali, skipulögðu sölustarfi og uppkaupum á afar góðum fyrirtækjum. Nýlega skrifuðu eigendur undir kaup á hinu gróna og öfluga fyrirtæki Fálkanum – Ísmar að Dalvegi í Kópavogi.

„Við höfum náð góðum árangri en það er alltaf hægt að gera betur. Fram undan eru fjölmörg spennandi tækifæri og ég horfi bjartsýnn til framtíðar,“ segir Hermann að lokum þegar við kveðjumst.

 

Hin hliðin

 

Hvað gleður þig mest? Að sjá stórfjölskylduna vaxa, dafna og ná árangri í lífinu og njóta þeirrar ómetanlegu gleði og hamingju sem hjónabandið veitir í annasömu starfi.

 

Draumaborgin? París, þar sem við hjónin höfum átt margar ógleymanlegar stundir.

 

Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Tryggvi Már Daníelsson, þegar hann var skírður. Nafnið hafði ekki lekið til okkar og því ríkti mikil spenna.

 

Hvað myndi ævisaga þín heita? Maður ótal mistaka. 

 

Bestu kaup sem þú hefur gert? Hlutabréfin í Kemi en ánægðastur er ég með hús okkar hjóna í Þrastarhöfðanum.

 

Hvað drífur þig áfram? Eldurinn sem hefur logað í mér frá unga aldri og hungrið eftir árangri sem hefur jákvæð áhrif á líf mitt og minna.

 

Uppáhaldsveitingastaður? Eddie V’s í Orlando og Korpa Klúbbhús.

 

Hverju myndir þú breyta á Íslandi ef þú ættir þess kost? Margt mætti gera betur en brýnast væri að minnka yfirbygginguna og færa fjármuni úr skrifræðinu í þjónustu við fólk.

 

Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni.

https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/09/Hermann-Gudmunds-og-fru-1.png 529 487 mosfellingur https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/04/mosfellingur-logo.jpg mosfellingur2026-09-28 20:10:112026-09-28 20:34:09Viðskipti eru mín ástríða

Bæjarblaðið Mosfellingur

Mosfellingur er frítt, óháð bæjarblað sem miðlar jákvæðum fréttum og sögum úr Mosfellsbæ. Blaðið kemur út mánaðarlega og er dreift á öll heimili og flest fyrirtæki í bænum. Á vefnum birtum við valdar fréttir og greinar úr blaðinu.
Ad
Ad
Mosfellingur ehf - Gerplustræti 4 - kt. 470426-3490 - VSK-nr. 161122 - [email protected] - Enfold WordPress Theme by Kriesi
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
Link to: Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Link to: Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Link to: RAFMAGNIÐ FÓR – EN MOSÓ LIFÐI AF Link to: RAFMAGNIÐ FÓR – EN MOSÓ LIFÐI AF RAFMAGNIÐ FÓR – EN MOSÓ LIFÐI AF
Scroll to top Scroll to top Scroll to top