Bjarki Bjarnason, sem búsettur er á Hvirfli í Mosfellsdal, hefur sent frá sér nýja bók sem ber heitið Reykháfur moldvörpunnar. Í bókinni fléttar hann saman ljóðum og ljósmyndum á skemmtilegan hátt.
Bjarki er afkastamikill höfundur og eftir hann liggur á þriðja tug bóka, meðal annars Árbók Ferðafélags Íslands um Kjósarsýslu sem kom út fyrr á þessu ári.
Titilljóð nýju bókarinnar er stutt en áhugavert og hljóðar svo:
Úr ryðguðum reyk-
háfi moldvörpunnar
berst enginn reykur.
Áhugasamir geta nálgast bókina með því að hafa samband við Bjarka í gegnum Facebook eða með tölvupósti á netfangið bjarnasonbjarki@gmail.com.