Þriðjudagur, 24. nóvember 2026
Forsíða
Mannlíf

Hver er Mosfellingur ársins 2026?

Hver er Mosfellingur ársins 2026?
1 mín. lestur
Facebook
Hver er Mosfellingur ársins 2026?

Val á Mosfellingi ársins 2026 stendur nú yfir. Lesendum gefst kostur á að tilnefna þá sem þeim þykja verðugir að bera nafnbótina. Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar á mosfellingur@mosfellingur.is

Þetta er í 22. sinn sem valið fer fram á vegum bæjarblaðsins Mosfellings. Íbúar eru hvattir til að taka virkan þátt og senda inn tilnefningar. Gjarnan má fylgja með stuttur rökstuðningur fyrir tilnefningunni og hvað viðkomandi hefur lagt til samfélagsins.

Áður hafa þessi hlotið nafnbótina sem finna má hér á vefnum: https://mosfellingur.is/mosfellingur-arsins

Jökull Júlíusson, Sigsteinn Pálsson, Hjalti Úrsus Árnason, Jóhann Ingi Guðbergsson, Albert Rútsson, Embla­ Ágústsdóttir, Steindi Jr., Hanna Símonardóttir, Greta Salóme, KALEO, Jóhanna Elísa Engelhartsdóttir, Sigrún Þ. Geirsdóttir, Guðni Valur Guðnason, Jón Kalman Stefánsson, Óskar Vídalín Kristjánsson, Hilmar Elísson, Sigmar Vilhjálmsson, Elva Björg Pálsdóttir, Halla Karen Kristjánsdóttir, Dóri DNA og Magnús Már Einarsson.

Útnefningin verður kunngjörð í fyrsta blaði ársins 2027 fimmtudaginn 14. janúar.

 

Birt í Mosfellingi 24. nóvember 2026.