Fimmtudagur, 26. nóvember 2026
Forsíða
Mannlíf

Bókmenntastund á Gljúfrasteini á aðventunni

Bókmenntastund á Gljúfrasteini á aðventunni
1 mín. lestur
Facebook

Notaleg bókmenntastund verður á Gljúfrasteini sunnudaginn 29. nóvember, á fyrsta sunnudegi í aðventu, þegar fjórir íslenskir rithöfundar lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum.

Upplestur á aðventunni er árleg hefð á Gljúfrasteini þar sem bókmenntaunnendum gefst kostur á að njóta kyrrlátrar stundar í Mosfellsdalnum og kynnast nýjum bókum í einstöku umhverfi á heimili Halldórs Laxness.

Að þessu sinni koma fram:

  • Hallgrímur Helgason – Enginn deyr í IKEA

  • Auður Ava Ólafsdóttir – Tengdasonur Íslands

  • Jón Kalman Stefánsson – Vakir þú

  • Ragnheiður Harpa Leifsdóttir – Deig

Viðburðurinn er tilvalið tækifæri til að taka sér hlé frá amstri jólaundirbúningsins, njóta íslenskra bókmennta og fá jafnvel hugmyndir að bókum í jólapakkann.

Aðgangur er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.

Nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðu Gljúfrasteins: Hér er síðan

Birt í Mosfellingi 26. nóvember 2026.