Leikfélag Mosfellssveitar fagnaði á dögunum 50 ára starfsafmæli. Félagið hefur í hálfa öld haldið uppi öflugri og lifandi leiklistarstarfsemi í Mosfellsbæ og gegnt mikilvægu hlutverki í menningarlífi bæjarins.
Leikfélag Mosfellssveitar var stofnað þann 8. nóvember árið 1976 en sögu leiklistar í Mosfellssveit má þó rekja allt aftur til ársins 1909, þegar Ungmennafélagið Afturelding var stofnað. Ungmennafélagið sinnti leiklistarstarfsemi í sveitinni fram eftir allri 20. öld og lagði þannig grunn að þeirri leiklistarhefð sem hefur lifað áfram í bænum.
Fyrstu árin hafði leikfélagið aðstöðu í Hlégarði en árið 1993 fékk félagið afnot af gamla áhaldahúsi bæjarins við Þverholt. Leikfélagar tóku þá höndum saman, innréttuðu húsið og komu því í það horf að það gæti þjónað sem leikhús. Bæjarleikhúsið hefur síðan þá verið vettvangur fjölmargra leiksýninga og annarra menningarviðburða.
Að jafnaði eru settar upp tvær viðamiklar sýningar hjá leikfélaginu á hverju leikári, nú síðast söngleikurinn Vorið vaknar sem hlaut afar góðar viðtökur áhorfenda. Í desember munu hefjast æfingar á barnaverki sem frumsýnt verður í febrúar 2027.
Mosfellingar eru duglegir að sækja leikhús í heimabyggð. Undanfarin ár hafa sýningar félagsins verið um 25 talsins á ári og áhorfendur að jafnaði um 2.500. Auk leiksýninga tekur félagið virkan þátt í menningarlífi bæjarins og kemur að ýmsum viðburðum á hverju ári, svo sem 17. júní, þrettándanum, Menningarvori og bæjarhátíðinni Í túninu heima.
Öflugt starf með börnum og unglingum
Frá árinu 1996 hefur Leikfélag Mosfellssveitar staðið fyrir barna- og unglinganámskeiðum undir heitinu Leikgleði. Námskeiðin eru haldin einu sinni í viku yfir vetrartímann en alla virka daga á sumrin. Árlega taka yfir 200 nemendur þátt í starfinu.
Allt starf Leikfélags Mosfellssveitar byggist á áhuga, eldmóði og ómetanlegu sjálfboðastarfi fjölda fólks. Félagið hefur tvisvar hlotið viðurkenninguna Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar, árin 1996 og 2015. Árið 2015 var sýningin Ronja ræningjadóttir einnig valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins og í kjölfarið sýnd þrisvar sinnum fyrir fullu húsi á stóra sviði Þjóðleikhússins.
Leikfélag Mosfellssveitar hefur alla tíð notið velvildar og stuðnings bæjaryfirvalda og þakkar félagið það sérstaklega.
Í tilefni 50 ára afmælisins vill Leikfélag Mosfellssveitar þakka öllum þeim sem hafa stutt félagið, tekið þátt í starfinu og lagt því lið með einum eða öðrum hætti undanfarna hálfa öld. Jafnframt vonast félagið til að sjá sem flesta Mosfellinga í Bæjarleikhúsinu á komandi árum, því áfram verður haldið að skapa, gleðja og efla leiklistarlíf í bænum.
Afmælinu var fagnað í Hlégarði laugardagskvöldið 14. nóvember, þar sem félagar sem starfað hafa með leikfélaginu í gegnum árin komu saman, rifjuðu upp góðar minningar og héldu upp á þennan merka áfanga í sögu félagsins.
Svipmyndir frá afmælishófinu.