Kosningar
Nú er komið að því að kjósa til
sveitarstjórna og það er gríðarlega
jákvætt að sjá hversu margir eru
boðnir og búnir til þess að stíga
fram og taka þátt í því að vinna
fyrir samfélagið okkar.
Það er ekki alltaf auðvelt að
ákveða að gefa fólki færi á því að
skjóta sig og sín málefni niður
eða dæma það hvernig við komum fram.
En þegar vel tekst til þá er þetta alveg ein
staklega gefandi vettvangur og fátt betra
en fá að leggja sitt á vogarskálarnar fyrir
heimabæinn sinn.
Þakklæti
Það er kannski öfugsnúið en ég er þakk
lát að sjá að hér höfum við mikið úrval af
fólki, marga lista og margar áherslur. Ég
ber virðingu fyrir því að hvert og eitt okkar
sem erum í framboði erum að stíga fram
með það að markmiði að vinna að því sem
við teljum að sé heillavænlegast fyrir sam
félagið okkar.
Mörgum finnst pólitík leiðinleg af því
að það myndast stundum þessi ótrúlega
ómálefnalegi leðjuslagur þar sem fólk
virðist helst bara vilja gera lítið úr and
stæðingnum. Slík pólitík er líka leiðinleg.
Ég vona að okkur beri gæfa til þess hér
í Mosfellsbæ að vera málefnaleg og tak
ast á um hugsjónir okkar á eðlilegan og
skemmtilegan hátt. Umræða eins og hefur
verið í samfélaginu undanfarið þar sem
pólitískar keilur eru slegnar með því að tala
niður regnbogafánann eða aðra hópa vona
ég að verði ekki leiðarstef fram
bjóðenda hér í Mosfellsbæ. Förum
ekki í manninn heldur boltann og
berum virðingu fyrir hvort öðru.
Þannig náum við árangri saman,
sama í hvaða flokki við stöndum.
Þú hefur áhrif
Ég vildi að allir sæju kosningar
eins og þær raunverulega eru. Tækifæri til
þess að hafa áhrif á umhverfið sitt, vegferð
ina sem sveitarfélagið er á og framtíð þess.
Það er því mikilvægt að hvert og eitt okkar
kynni sér stefnur framboðanna, fólkið á
listunum og máti það við sínar skoðanir og
kjósi svo eftir sannfæringu sinni.
Þann 16. maí er þitt tækifæri til þess að
ákveða hvert Mosfellsbær á að stefna næstu
4 árin. Þú ákveður hvaða fólk, hvaða hug
sjón og hvaða flokkur fær þitt atkvæði og
með því ert þú að móta hver framtíð bæjar
ins verður.
Með því að veita mér þitt atkvæði mun
ég lofa því að gera allt sem í mínu valdi
stendur til þess að halda í Mosfellsbæjar
andann, að hér verði fyrirmyndar samfélag
sem hlúir saman að öllum sínum íbúum
og tengist þessum sterku böndum að vera
Mosfellingar.
Setjum x við C þann 16. maí
Fyrir Mosó
Elín Anna Gísladóttir 3. sæti á lista
Viðreisnar í Mosfellsbæ




