Fyrr á árinu skrifuðum við grein hér í Mosfelling þar sem við fórum yfir fjölmargar framkvæmdir sem þá voru fram undan í bænum. Nú þegar haustið er gengið í garð er ánægjulegt að sjá hversu mörg þessara verkefna hafa orðið að veruleika. Nýir leikvellir, bætt íþróttaaðstaða og fjölbreyttari möguleikar til hreyfingar og samveru eru mikilvæg skref í uppbyggingu Mosfellsbæjar.
Flest þessara verkefna voru undirbúin á síðasta kjörtímabili þegar við í Framsókn vorum í meirihluta bæjarstjórnar og voru á fjárhagsáætlun fyrir árið 2026. Þau endurspegla þá sýn okkar að Mosfellsbær eigi að vera fjölskylduvænt samfélag þar sem íbúar á öllum aldri hafi góða möguleika til hreyfingar, útivistar og félagslegrar þátttöku.
Fjölbreyttari aðstaða fyrir alla aldurshópa
Nýir leikvellir, á borð við leikvöllinn við Asparlund í Reykjahverfi, eru gott dæmi um framkvæmd sem skilar miklu til nærumhverfisins. Við Kvíslarskóla hefur glæsilegur útikörfuboltavöllur verið tekinn í notkun og í Ævintýragarðinum hefur bæst við ný fjallahjólabraut. Þá hefur verið unnið að endurbótum á skólalóðum, meðal annars við Lágafellsskóla og Varmárskóla, sem bæta aðstöðu barna til leiks og hreyfingar.
Á Varmársvæðinu hefur verið unnið að mikilvægum framkvæmdum. Þar ber helst að nefna nýjan frjálsíþróttavöll með upphitaðri hlaupabraut, bætta styrktaraðstöðu og félagsaðstöðu fyrir íþróttastarf Aftureldingar. Þá er ánægjulegt að lengri helgaropnun Lágafellslaugar sé komin til að vera, enda var það breyting sem margir íbúar höfðu kallað eftir.
Mikill ávinningur fyrir samfélagið
Þessar framkvæmdir sýna vel hversu miklu markvissar fjárfestingar geta skilað. Leikvellir, útivistarsvæði og minni íþróttamannvirki eru oft tiltölulega hóflegar fjárfestingar miðað við samfélagslegan ávinning. Þau skapa tækifæri til hreyfingar, félagslegra samskipta og samveru og gegna mikilvægu hlutverki í forvörnum og heilsueflingu.
Við teljum jafnframt mikilvægt að nýta betur þær fasteignir sem Mosfellsbær á nú þegar. Þar viljum við sérstaklega horfa til annarrar hæðar Hlégarðs og þess að ljúka við þriðju hæð Brúarlands. Með betri nýtingu þessara bygginga má skapa aukin tækifæri fyrir menningar- og félagsstarf án þess að ráðast þurfi í kostnaðarsamar nýbyggingar.
Áframhaldandi uppbygging
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 munum við í Framsókn leggja ríka áherslu á að áfram verði fjárfest í verkefnum sem bæta daglegt líf Mosfellinga. Þar horfum við sérstaklega til leiksvæða, íþrótta- og útivistaraðstöðu, forvarna og betri nýtingar á mannvirkjum bæjarins.
Það þarf ekki alltaf stórar og kostnaðarsamar framkvæmdir til að hafa mikil áhrif á lífsgæði fólks. Oft eru það einmitt minni verkefnin, sem snerta daglegt líf íbúanna, sem skila mestum ávinningi.
Þannig viljum við halda áfram að byggja upp Mosfellsbæ – með skynsamlegum fjárfestingum sem gera góðan bæ enn betri.
Sævar Birgisson og Halla Karen Kristjánsdóttir,
bæjarfulltrúar Framsóknar í Mosfellsbæ
