Laugardagur, 28. nóvember 2026
Forsíða
Aðsendar greinar

Barnafjölskyldur hafa alltaf verið mér hugleiknar

Barnafjölskyldur hafa alltaf verið mér hugleiknar
3 mín. lestur
Facebook

Ég var 24 ára gömul og nýorðin móðir þegar ég tók mín fyrstu skref í stjórnmálum hér í Mosfellsbæ. Eins og margir ungir foreldrar var ég að reyna að samræma fjölskyldulíf, vinnu og allt það sem fylgir því að eignast barn. Ég kynntist því af eigin raun hversu miklu máli það skiptir að samfélagið styðji við ungar fjölskyldur.

Eitt af mínum fyrstu verkum var að beita mér fyrir því að Mosfellsbær tæki þátt í kostnaði foreldra vegna þjónustu dagforeldra. Á þeim tíma voru slíkar niðurgreiðslur ekki í boði hér í bænum, þótt nágrannasveitarfélög hefðu þegar tekið skref í þá átt. Mér fannst það ósanngjarnt og vildi breyta því. 

Síðan eru liðin 25 ár og margt hefur breyst til hins betra. Ég er stolt af því að hafa fengið að leggja mitt af mörkum til þess að gera Mosfellsbæ að enn fjölskylduvænna sveitarfélagi. Hér býr fjöldi barnafjölskyldna og góð þjónusta við börn og foreldra er án efa ein af ástæðum þess að fólk velur að setjast hér að. Í dag er meðal annars komið til móts við foreldra með niðurgreiðslum vegna dagforeldra og leitast við að jafna kostnað foreldra vegna ólíkra dagvistunarúrræða.

Frá dagforeldrum til fæðingarorlofs

Málefni barna og fjölskyldna hafa fylgt mér allan minn stjórnmálaferil. Á Alþingi hef ég meðal annars tekið þátt í að lengja fæðingarorlofið og hækka þak greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Þetta hafa verið mikilvæg skref í þá átt að auðvelda foreldrum að samræma fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku.

En betur má ef duga skal.

Nú hef ég, ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, lagt fram frumvarp um breytingar á fæðingarorlofslögum sem ég tel löngu tímabærar.

Í dag getur það gerst að foreldrar sem eignast annað barn skömmu eftir það fyrra fái lægri greiðslur í fæðingarorlofi. Ástæðan er sú að fyrra fæðingarorlofið getur haft áhrif á þær tekjur sem lagðar eru til grundvallar greiðslum vegna næsta barns.

Þetta finnst mér einfaldlega ekki sanngjarnt. Við leggjum því til að foreldrar sem eignast annað barn innan 30 mánaða frá fyrri fæðingu geti haldið sömu greiðslum og áður, að teknu tilliti til launaþróunar.

Ungt fólk á ekki að þurfa að bíða

Við viljum einnig bæta stöðu þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði að loknu námi. Í dag þarf almennt að hafa unnið samfellt í sex mánuði til að öðlast rétt til launatengdra greiðslna í fæðingarorlofi. Við leggjum til að þeir sem hafa nýlokið námi geti öðlast þann rétt eftir þriggja mánaða starf. Þá viljum við einnig bæta stöðu þeirra sem hafa verið atvinnulausir en eru komnir aftur út á vinnumarkaðinn.

Þetta eru breytingar sem geta skipt ungar fjölskyldur verulegu máli.

Fjölskylduvænt samfélag verður ekki til af sjálfu sér

Nú þegar ég er sjálf orðin amma horfi ég á þessi mál frá enn einu sjónarhorninu. Ég sé hjá næstu kynslóð hversu mikilvægt það er að geta skipulagt fjölskyldulífið án þess að þurfa sífellt að hafa áhyggjur af fjárhagslegum afleiðingum ákvarðana um barneignir.

Við höfum áhyggjur af lækkandi fæðingartíðni á Íslandi og tölum gjarnan um mikilvægi þess að fleiri börn fæðist. En þá verðum við líka að skoða hvort lögin okkar styðji raunverulega við ungar fjölskyldur eða setji þeim óþarfa hindranir.

Fyrir 25 árum vildi ég breyta kerfi sem mér fannst ósanngjarnt gagnvart ungum foreldrum í Mosfellsbæ. Í dag vinn ég enn að sömu hugsjón, að gera samfélagið fjölskylduvænna og auðvelda fólki að eignast börn.

Það á nefnilega að vera gleðiefni að eignast barn, ekki fjárhagsleg áhætta.


Bryndís Haraldsdóttir,
alþingismaður

Birt í Mosfellingi 5. nóvember 2026.