Gullið í gamla Miðdalslandi (nú Þormóðsdal) í Mosó er til komið í fornum háhitasvæðum og finnst í kvartsæðum og grannbergi þeirra. Þau gosberglög og innskotsberg eru hluti af 1,5 til 2 milljóna ára megineldstöð (Stardalseldstöðinni) ásamt eldstöðvakerfi, löngu óvirku. Rofleifar eldstöðvarinnar sjást t.d. í Móskarðahnjúkum, í lágum fellum nálægt Stardal og í Grímannsfelli. Austan við fellið eru dalir og gil og lindar-/dragá kennd við Seljadal.
Á allstóru landsvæði nálægt dalnum fannst kvartsæð upp úr 1920 sem var seinna brotin, m.a. til að steina byggingar, t.d. Þjóðleikhúsið og fjölda annarra húsa. Í harðri steintegundinni (samband kísils og súrefnis) reynast vera snefilefnaagnir. Þau málmsambönd eru hluti af kvartsútfellingunum, ættuðum úr kvikugösum háhitasvæðanna. Í bland við málmsamböndin er hreint gull í allháu hlutfalli, mælt í grömmum á hvert tonn af kvartsi. Nú hefur kanadískt námufyrirtæki ákveðið að sinna frekari rannsóknum á svæðinu. Bora á misdjúpar holur til að kanna útbreiðslu kvartsæða og mögulegt vinnslusvæði og taka fleiri grjótsýni til að greina. Það er þáttur í að áætla vinnsluhæfni gullnámu.
Gullnámurekstur er dýr og væntanlega stýrir hagnaðarvon af honum framhaldinu af hálfu fyrirtækisins, eins og saga nútímagullvinnslu sýnir. Algengur gullgröftur (e. open pit mining) er mjög vatnskræfur, landfrekur og skilar miklu af mulningi, menguðu vatni og leðju út í umhverfið. Frekari hefðbundin vinnsla gulls fer svo fram með efnafræðilegum útdrætti þar sem m.a. kalk, sýaníð, natríum- eða kalsíumsýaníð, kolefni og vítissódi koma við sögu á fyrra stigi og svo rafgreining og/eða aðrar aðferðir á því seinna. Nýrri og dýrari aðferðir á fyrra stigi, með öðrum efnasamböndum og tækni, eru kunnar og sums staðar notaðar.
Um framtíðarvinnsluaðferðir fyrirtækisins vitum við ekkert, verði ákveðið að opna námu þarna, þ.e. ef leyfi fást. Aðferðir gull- og silfurvinnslu þess ættu að vera uppi á borðum nú þegar. Ég tel meira en vafasamt að leyfa málmvinnslu austan Grímannsfells, hvað sem líður innanlandstekjum, mönnun vinnustöðva eða mögulegum áætlunum um varnir gegn mengun og röskun víðerna. Verndum og nýtum land og vatn til annarra þarfa en umfangsmikils námugraftar og málmvinnslu nálægt þéttbýlinu á vatnasvæði Seljadalsár og Úlfarsár/Korpu.
Ari Trausti Guðmundsson
