Þótt við í Framsókn séum nú komin í minnihluta bæjarstjórnar munu íbúar Mosfellsbæjar áfram njóta góðs af þeirri uppbyggingu sem ráðist var í á síðasta kjörtímabili. Fjölmörg verkefni sem hafa verið í undirbúningi undanfarin ár eru nú að verða að veruleika og munu bæta þjónustu, aðstöðu og lífsgæði í Mosfellsbæ strax í sumar.
Uppbygging að Varmá
Eitt af þeim verkefnum sem margir hafa beðið eftir er ný þjónustu- og aðkomubygging að Varmá. Nú er unnið að því að ganga frá lokasamningi við rekstraraðilann Eignabyggð og þegar samningurinn liggur fyrir getur uppbyggingin loks hafist af fullum krafti.
Undanfarna mánuði hefur einnig verið unnið að nýrri félagsaðstöðu fyrir Aftureldingu í Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Aðstaðan er staðsett fyrir ofan kraftlyftingasalinn og íþróttageymslur salanna og eru framkvæmdir á lokastigi. Afturelding fær húsnæðið afhent í júní og mun félagið sjá um lokafráganginn.
Framkvæmdir við nýjan frjálsíþróttavöll eru einnig á lokastigi og stefnt er að því að völlurinn verði tilbúinn í júlí. Þar verður upphituð 200 metra hlaupabraut ásamt aðstöðu fyrir hástökk, langstökk, þrístökk, stangarstökk, kúluvarp og sprettæfingar. Þetta verður mjög mikilvæg viðbót við íþróttaaðstöðu bæjarins.
Saga og framtíð Álafosskvosar
Í Álafosskvos eru einnig spennandi verkefni fram undan. Þar er stefnt að opnun kaffihúss, verslunar og sýningar sem segir sögu Álafosskvosar og ullariðnaðarins á Íslandi. Reksturinn verður í höndum einkaaðila en Mosfellsbær kemur að verkefninu og hefur stutt við uppbygginguna. Markmiðið er að skapa lifandi áfangastað þar sem saga, menning og upplifun fara saman.
Verkefnið er hluti af uppbyggingu Álafosskvosar sem menningar- og ferðamannasvæðis í samræmi við atvinnustefnu Mosfellsbæjar 2023–2030. Greining Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins sýnir jafnframt þann mikla áhuga sem Álafosskvos nýtur meðal íbúa og annarra gesta.
Jafnframt bíður Mosfellsbær eftir því að ráðherra staðfesti verndarsvæði í byggð fyrir Álafosskvos. Slík vernd viðurkennir sérstakt menningarsögulegt, byggingarlistalegt og fagurfræðilegt gildi svæðisins og styrkir stöðu þess til framtíðar.
Frekari möguleikar til hreyfingar
Við Kvíslarskóla rís loks alvöru útikörfuboltavöllur í fullri stærð með sex körfum. Völlurinn verður mikilvæg viðbót við íþróttaaðstöðu Mosfellsbæjar og mun skapa ný tækifæri til æfinga, leikja og útivistar fyrir börn, ungmenni og aðra íbúa bæjarins. Stefnt er að því að völlurinn verði tilbúinn í ágúst.
Einnig er verið að gera nýja fjallahjólabraut, svokallaða „pump track“-braut, með fjölbreyttum hæðum og sveigjum sem hentar bæði yngri og eldri hjólurum. Hún verður góð viðbót við hjólaaðstöðuna í bænum og styrkir enn frekar möguleika til útivistar og hreyfingar.
Til viðbótar við þessar framkvæmdir verður helgaropnun Lágafellslaugar lengd í sumar.
Þakklæti og áframhaldandi þjónusta
Síðustu fjögur ár hafa liðið hratt og hefur miklu verið áorkað. Við í Framsókn erum stolt af þeim verkefnum sem hafa orðið að veruleika á kjörtímabilinu 2022–2026 og viljum jafnframt þakka bæjarbúum fyrir þann stuðning sem okkur var sýndur í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum.
Við í Framsókn munum áfram vinna af heilindum, ábyrgð og alúð fyrir Mosfellsbæ.
Halla Karen Kristjánsdóttir,
bæjarfulltrúi Framsóknar
Sævar Birgisson, bæjarfulltrúi
Framsóknar

