Badmintondeild Aftureldingar átti góðu gengi að fagna á Meistaramóti BH og RSL í Hafnarfirði þar sem keppendur félagsins sóttu bæði gull- og silfurverðlaun í nokkrum greinum. Alls tóku 14 leikmenn frá Aftureldingu þátt í mótinu.
Sunna María Ingólfsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði í einliðaleik í 2. deild án þess að tapa einni einustu lotu. Sunna leikur í U17 flokki en hefur síðastliðið ár verið að vinna sig markvisst upp í fullorðinsmótaröðina og sýndi í Hafnarfirði að hún á fullt erindi á þann vettvang. Í tvíliðaleik kvenna í 2. deild krækti hún sér auk þess í silfur ásamt Önnu Bryndísi Andrésdóttur.
Margrét Dís Stefánsdóttir stóð einnig uppi sem sigurvegari í 1. deild tvíliðaleiks kvenna ásamt Sigrúnu Marteinsdóttur úr TBR. Þá hlutu Margrét Dís og Einar Örn Þórsson silfurverðlaun í 1. deild tvenndarleiks.
Einar Örn og Stefán Eiríksson bættu enn einu silfrinu í safnið þegar þeir náðu öðru sæti í 1. deild tvíliðaleiks karla. Kristján Hrafn Bergsveinsson og Viktor Þórir Ström gerðu slíkt hið sama í 2. deild tvíliðaleiks karla.
Meistaramót BH og RSL er eitt af sterkari og vinsælli badmintonmótum vetrarins og að þessu sinni voru þátttakendur um 100.
Afturelding getur vel við unað eftir helgina, enda fór hópurinn heim með glæsilegan verðlaunafeng og dýrmæta reynslu í farteskinu.