Fimmtudagur, 26. nóvember 2026
Forsíða
Íþróttir

Baldur Þorkelsson á hraðri uppleið

Baldur Þorkelsson á hraðri uppleið
2 mín. lestur
Facebook

Mosfellingurinn Baldur Þorkelsson hefur á skömmum tíma unnið sig upp í fremstu röð íslenskra hjólreiðamanna. Hann byrjaði að þeysast um fellin í Mosfellsbæ á fjallahjóli en var í haust valinn í íslenska landsliðið sem keppti á Evrópumeistaramótinu í götuhjólreiðum í Ljubljana í Slóveníu.

Baldur er innfæddur Mosfellingur og íþróttir hafa fylgt honum frá unga aldri. Hann var í Íþróttaskóla barnanna hjá Svövu, fór síðan í fimleika og karate hjá Aftureldingu og æfði fótbolta alla grunnskólagönguna.

Undir lok grunnskóla tók fjallahjólið hins vegar yfir og hjólreiðarnar urðu fljótt aðaláhugamálið. Fyrsta keppnin var haustið 2024 þegar hann vann sinn aldursflokk í XCO-móti á Hólmsheiði.

Árið 2025 varð hann meðal annars Íslandsmeistari í junior-flokki í fjallahjólreiðum á Akureyri, vann bikarmót í Guðmundarlundi og sigraði í maraþonfjallahjólreiðum í Mosfellsbæ. Sama sumar fékk hann styrk frá bænum til að leggja stund á íþrótt sína.

Árið 2026 færði Baldur sig upp í elite-flokk og hélt áfram að safna verðlaunum. Hann vann meðal annars Tour de Ormurinn og bikarmót í criterium og varð þriðji á Íslandsmótinu í malarhjólreiðum og Íslandsmeistaramótinu í maraþonfjallahjólreiðum. Þá fagnaði hann sigri í tvímenningskeppninni Lauf Elja Challenge ásamt Ingvari Ómarssyni.

Baldur æfir nú með Hjólreiðafélagi Reykjavíkur en hefur haldið tengslum við Aftureldingu og verið þjálfari hjá hjólreiðadeild félagsins síðustu tvö sumur.

Á Evrópumeistaramótinu í Slóveníu féll hann eftir um 50 kílómetra þegar hjólreiðamenn duttu fyrir framan hann. Hann slasaðist lítillega og varð að hætta keppni en landsliðsvalið markar engu að síður stóran áfanga í ört vaxandi ferli hans.


Birt í Mosfellingi 24. nóvember 2026.