Skarphéðinn Hjaltason átti góðu gengi að fagna á Íslandsmóti seniora í júdó þar sem hann varð Íslandsmeistari í -90 kg flokki.
Hann var auk þess hluti af sigursveit Júdófélags Reykjavíkur (JR) í sveitakeppninni og lauk því mótinu með tvö gull í farteskinu.
Fram undan eru krefjandi verkefni hjá Skarphéðni. Stefnt er að þátttöku í mótum og æfingabúðum erlendis, meðal annars á Norðurlandamóti og Smáþjóðaleikum. Þá er vonast til að fleiri og stærri alþjóðleg mót bætist við dagskrána þegar líður á tímabilið.
Árangurinn á Íslandsmótinu gefur góð fyrirheit fyrir framhaldið og það verður spennandi að fylgjast með Skarphéðni á tatamíinu á næstu mánuðum.