Sunna María gerði sér lítið fyrir og sigraði í einliðaleik í 2. deildinni á Meistaramóti BH og RSL þar sem hún tapaði ekki lotu. Sunna leikur í U17 en hefur síðasta árið verið að vinna sig upp í fullorðinsmótaröðina. Margrét Dís sigraði 1. deild í tvíliða kvenna með Sigrúnu Marteinsdóttur (TBR) Hún og Einar Þórsson náðu svo í silfurverðlaun í 1. deild í tvenndarleik. Einar og Stefán Eiríksson sóttu silfurverðlaunun í 1. deild tvíliðaleik og Kristján Hrafn og Viktor Ström gerðu slíkt hið sama í 2.deildinni.
Þetta mót er eitt sterkasta og skemmtilegasta mót vetrarins þar sem um 100 leikmenn taka þátt. Afturelding var með 14 leikmenn á þessu móti.
Við óskum öllum keppendum til hamingju með árangurinn.
Badmintondeild Afturelding sótti gull og silfur í Hafnarfjörð
1 mín. lesturFacebook
Birt í Mosfellingi 23. nóvember 2026.