Fróðlegar staðreyndir um kosningarnar
Það að taka þátt í kosningum, ekki bara sem kjósandi heldur einnig sem starfsmaður á kjörstað, er afar góð reynsla. Síðustu fjögur ár hef ég átt þess kost að taka þátt í þrennum kosningum hér í Mosfellsbæ og sem formaður yfirkjörstjórnar borið, ásamt öðrum kjörstjórnarmeðlimum, ábyrgð á framkvæmd þeirra.
Kosningadagurinn sjálfur er eins og vel skipulagt kaos. Fólk streymir að, mikið er um að vera og hver mínúta skiptir máli. Starfið felst ekki eingöngu í því að taka á móti kjósendum og gæta þess að allt fari fram samkvæmt lögum og reglum heldur einnig í því að skapa traust og öryggi.
Það er gaman að fylgjast með fjölbreytileika fólksins sem kemur á kjörstað. Sumir mæta snemma, aðrir rétt fyrir lokun. Sumir eru snöggir að kjósa en aðrir gefa sér góðan tíma. Stundum gleymast persónuskilríki og þá er gott að hafa einhvern á staðnum sem getur staðfest hver viðkomandi er.
Nærri hundrað manns koma að kosningunum
Ekki gera sér allir grein fyrir því hversu mikil vinna felst í undirbúningi og framkvæmd kosninga. Í Mosfellsbæ eru 54 manns tilnefndir í undirkjörstjórnir og 36 þeirra starfa á kjördag. Auk þess koma að verkefninu dyraverðir, talningarfólk, starfsfólk við uppsetningu og frágang, eldhússtarf og skrifstofuhald.
Yfirkjörstjórn skipa þrír aðalmenn og þrír varamenn sem sinna störfum bæði fyrir og eftir kjördag. Alls koma hátt í 100 manns að framkvæmd kosninganna í Mosfellsbæ og verkefnið gengur ekki upp nema allir vinni saman.
Sturlaðar staðreyndir
Við kosningar eru teknar saman ýmsar tölfræðilegar upplýsingar. Í Mosfellsbæ eru níu kjördeildir með um það bil 1.100 kjósendur í hverri. Á kjörskrá voru alls 10.382 einstaklingar.
Ein gata vakti sérstaka athygli. Þar voru 88 kjósendur skráðir á kjörskrá en enginn þeirra mætti á kjörstað.
Í tveimur kjördeildum mættu nákvæmlega 666 kjósendur á kjörstað. Í annarri deildinni sátu 501 heima og í hinni 502, þó 208 þeirra hefðu kosið utan kjörfundar.
Önnur skemmtileg tilviljun var sú að í Lágafellsskóla mættu 3.072 karlar, 3.071 kona og einn kynhlutlaus kjósandi á kjörstað.
Utankjörfundaratkvæði skiptust ekki alveg jafn jafnt. Þar kusu 456 karlar og 493 konur.
Á kjörskrá voru alls 5.375 karlar, 5.006 konur og einn kynhlutlaus einstaklingur.
Útstrikanir, auðir seðlar og ógild atkvæði
Við vitum ekki hvernig hver og einn ráðstafaði atkvæði sínu, en ýmislegt má lesa úr tölfræðinni.
Aðeins einn af þeim ellefu frambjóðendum sem náðu kjöri sem aðalmenn fékk enga útstrikun. Allir hinir fengu á bilinu eina til sextán útstrikanir eða breytingar frá kjósendum.
Sumir kjósendur ganga enn lengra og kjósa lista en strika síðan út alla frambjóðendur nema einn. Slík atkvæði teljast gild.
Einnig voru dæmi um að fólk færi í utankjörfundaratkvæðagreiðslu og skilaði svo auðum seðli. Samtals voru 84 seðlar auðir, sem er innan við eitt prósent allra greiddra atkvæða.
Ógildir seðlar voru aðeins 23 talsins eða 0,22%. Þar falla meðal annars undir seðlar þar sem merkt er á annan hátt en með krossi eða haki.
Niðurstaðan liggur fyrir
Nú liggja úrslit kosninganna fyrir og við getum með sanni sagt að talið var af öryggi og samviskusemi. Við óskum öllum kjörnum fulltrúum og varamönnum þeirra innilega til hamingju með kjörið.
Elín Árnadóttir

