Mosfellsbær með 514 milljóna afgang
Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2025 var lagður fram á fundi bæjarráðs 9. apríl. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta er jákvæð um 514 milljónir króna, þrátt fyrir krefjandi efnahagsaðstæður.
Rekstrartekjur bæjarins námu 24 milljörðum króna á árinu en rekstrargjöld fyrir afskriftir voru 21,3 milljarðar. Launakostnaður er stærsti einstaki útgjaldaliðurinn, alls 12,3 milljarðar króna, eða um 58% af heildargjöldum.
Eigið fé sveitarfélagsins nam 9,8 milljörðum króna í árslok og var eiginfjárhlutfallið 25,4%. Skuldaviðmið stendur í 98,2% og er því innan þeirra marka sem gilda um fjármál sveitarfélaga.
Fræðslu- og uppeldismál eru áfram stærsti málaflokkurinn en til þeirra runnu 10,1 milljarðar króna, sem jafngildir rúmlega helmingi skatttekna. Til félagsþjónustu fóru 4,2 milljarðar og til íþrótta- og tómstundamála um 1,8 milljarðar.
Árið 2025 var jafnframt metár í fjárfestingum en alls var fjárfest fyrir 4,3 milljarða króna. Þar bar hæst opnun nýs leikskóla í Helgafellshverfi, Sumarhúsa, sem rúmar um 150 börn. Einnig var unnið að uppbyggingu íþróttamannvirkja, meðal annars við Varmá og Helgafellsskóla, auk viðhalds og gatnaframkvæmda víðs vegar um bæinn.
Unnið var markvisst að því að bæta þjónustu við íbúa. Verkefnið Börnin okkar var innleitt með áherslu á forvarnir og bætt aðgengi fyrir börn og fjölskyldur. Þá var þjónusta við eldri borgara styrkt, meðal annars með samþættri heimahjúkrun og auknu félagsstarfi.
Áfram var lögð áhersla á stafræna þróun og einfaldari þjónustu með bættri nýtingu gagna og aukinni sjálfvirkni.
Ársreikningurinn verður tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn 15. apríl.


