Föstudagur, 27. nóvember 2026
Forsíða
Viðtöl

„Við erum öll einhvern veginn í sama liðinu“

„Við erum öll einhvern veginn í sama liðinu“
6 mín. lestur
Facebook

Þórdís María Aikman hefur komið víða við á starfsferlinum, allt frá knattspyrnuvellinum yfir í súkkulaðibransann. Í dag er hún rekstrarstjóri Aftureldingar, þar sem hún hefur fundið starf sem sameinar ástríðu hennar fyrir íþróttum og menntun í rekstrarverkfræði. Þórdís er þriggja barna móðir, mikil félagsvera og keppnismanneskja fram í fingurgóma sem kann hvergi betur við sig en í Mosfellsbæ.

Þórdís María Aikman er ein þeirra sem virðast alltaf hafa nóg fyrir stafni. Hún lýsir sjálfri sér sem ástríðufullum hreyfiunnanda, mikilli félagsveru og lausnamiðaðri og drífandi þriggja barna móður. Þótt hún sé alla jafna róleg að eðlisfari leynist undir yfirborðinu mikið keppnisskap sem hefur bæði fleytt henni langt og stundum komið henni í koll.

„Ég held að ég væri ekki á þeim stað í lífinu sem ég er í dag ef ég hefði ekki fengið það í vöggugjöf,“ segir Þórdís.

Auglýsingin sem birtist á hárréttum tíma

Leið Þórdísar í rekstrarstjórastólinn hjá Aftureldingu var nokkuð skemmtileg tilviljun, eða mögulega örlögin sjálf. Hún hafði starfað hjá súkkulaðiframleiðandanum Omnom á Granda í fimm ár og var farin að þreytast á því að eyða allt að einum og hálfum klukkutíma á dag í akstur til og frá vinnu.

Þórdís er menntaður rekstrarverkfræðingur með brennandi áhuga á íþróttum og dreymdi um starf þar sem hún gæti sameinað menntun sína og áhugamál. Ekki myndi heldur skemma fyrir ef vinnustaðurinn væri í heimabænum.

„Ég opna Alfreð í fyrsta skipti í fimm ár og þá er fyrsta auglýsingin sem ég sé „Rekstrarstjóri Aftureldingar“. Starf sem tikkaði í öll boxin sem ég óskaði eftir,“ segir Þórdís.

Hún segir ákvörðunina um að sækja um starfið hafa verið eitt mesta heillaskref starfsferilsins og hún gæti ekki verið ánægðari í dag.

Engir tveir dagar eins

Það er óhætt að segja að verkefnin séu fjölbreytt hjá rekstrarstjóra Aftureldingar. Þórdís heldur utan um fjármál félagsins, reikningagerð og greiðslur, auk þess að vera í daglegum samskiptum við starfsfólk og sjálfboðaliða allra deilda.

„Það er ekkert sem heitir venjulegur dagur í íþróttageiranum, held ég. Yfirleitt þegar ég held að dagurinn verði rólegur þá troðfyllist hann af óvæntum verkefnum á augabragði.“

Það sem hefur þó komið henni mest á óvart er ekki umfang rekstrarins heldur fólkið sem stendur að baki félaginu.

Hún segist heilluð af þeim fjölda einstaklinga sem leggur ómælda vinnu í að halda starfinu gangandi, oft án þess að fá nokkuð greitt fyrir.

„Fólk sem er tilbúið til að vaða eld og brennistein fyrir félagið er í mínum augum englar í dulargervi,“ segir hún.

Samheldnin einkennir Mosó

Þórdís hefur sjálf verið bæði leikmaður og þjálfari og segir þá reynslu nýtast sér vel í núverandi starfi. Íþróttirnar hafi kennt henni aga, dugnað og gagnkvæma virðingu, auk þess sem hún eigi auðveldara með að setja sig í spor þeirra sem starfa innan félagsins.

Að hennar mati er fátt sem lýsir Aftureldingu og Mosfellsbæ betur en það hvernig fólk stendur saman.

„Það sem mér finnst dásamlegt við Aftureldingu og bara Mosfellsbæ yfir höfuð er þessi samheldni sem er svo einkennandi,“ segir Þórdís.

Hún bendir á að stór hluti barna og ungmenna í bænum stundi íþróttir hjá Aftureldingu og það skapi sérstaka tengingu milli bæjarbúa.

„Það gerir það að verkum að við erum öll einhvern veginn í sama liðinu.“

Keppnisskapið fylgir heim

Kappið sem einkenndi Þórdísi á knattspyrnuvellinum hefur síður en svo horfið þótt hún sé komin í rekstrarstjórastólinn. Hún leggur sig alla fram við þau verkefni sem hún tekur að sér og vill helst gera hlutina aðeins betur en ætlast er til.

Hún viðurkennir þó að þetta geti verið bæði blessun og bölvun og að hún hafi þurft að læra að gera minni kröfur til sjálfrar sín.

En hvernig ætli henni gangi að tapa í spilum heima fyrir?

Þórdís segist alveg geta leyft börnunum að vinna af og til. Það sé þó ekki alltaf auðvelt þar sem hluti þeirra virðist hafa erft keppnisskapið frá móður sinni.

Hún þurfi því stundum að minna sjálfa sig á að sýna gott fordæmi og kunna líka að tapa.

Lærdómsrík ár í súkkulaðinu

Þórdís segir árin fimm hjá Omnom hafa verið afar lærdómsrík. Þar hafi hún ekki aðeins öðlast þekkingu á súkkulaðiframleiðslu heldur einnig lært hversu miklu máli góður starfsandi skiptir.

Hún minnist sérstaklega fjölskyldulegrar stemningar á vinnustaðnum og þess hvernig starfsfólkið tókst saman á við krefjandi verkefni. 

Auk þess hafi árin kennt henni að vinna undir álagi, sýna þrautseigju og hugsa í lausnum þegar á móti blæs.

Og þótt hún hafi skipt súkkulaðibransanum út fyrir íþróttirnar hefur ástin á súkkulaði ekkert minnkað.

Margir boltar á lofti

Það getur verið krefjandi að samræma annasamt starf, þjálfun og fjölskyldulíf með þrjú börn á heimilinu. Þórdís segir það þó ganga ágætlega með góðu skipulagi og réttri forgangsröðun.

Hún viðurkennir að hún væri fremst í röðinni ef hægt væri að kaupa fleiri klukkutíma í sólarhringinn.

Þegar hún er spurð hvernig fjölskylda og vinir myndu lýsa henni segir hún að svarið yrði líklega að hún væri með allt of marga bolta á lofti og ætti mjög erfitt með að segja nei.

Hún er ekki ósammála þeirri lýsingu en vonar þó að fólkið í kringum hana kunni að meta félagsskapinn sem hún hefur upp á að bjóða.

Þegar Þórdís á frí er hreyfing yfirleitt efst á blaði. Hún segir enga betri leið til að byrja daginn, sérstaklega í góðum félagsskap. Síðan slakar hún gjarnan á heima eða gerir sér dagamun með fjölskyldu og vinum.

Góður matur með góðu fólki er að hennar mati fullkominn endir á deginum.

Frá 40 stiga hita í íslenskt skammdegi

Þórdís hefur einnig búið og starfað erlendis og segir þá reynslu hafa kennt sér margt, ekki síst að standa á eigin fótum í ókunnu landi.

Þrátt fyrir spennandi tækifæri og nýja reynslu hafi hún saknað Íslands mikið, sérstaklega fjölskyldunnar.

Hún segir jafnframt að það geti komið á óvart hversu fljótt maður fær nóg af sól og hita.

Eftir nokkra mánuði í 40 stiga hita hafi hún jafnvel farið að sakna íslenska veðurfarsins, með öllum sínum óútreiknanleika og nístandi kulda.

Þriggja mínútna ferð í vinnuna

Í dag segist Þórdís hvergi vilja vera annars staðar en í Mosfellsbæ. Hún elskar þá sveit í borg sem einkennir bæinn og hversu náið samfélagið er.

Það séu líka mikil forréttindi að geta unnið í sama bæ og maður býr í, sérstaklega eftir að hafa áður eytt löngum tíma í umferðinni á hverjum degi.

Nú tekur ferðin í vinnuna aðeins þrjár mínútur.

Þegar hún er spurð um uppáhaldsstaðinn sinn í bænum nefnir hún Lágafellslaug og svæðið í kringum Varmá, þar sem hún nýtur þess bæði að hreyfa sig og slaka á.

Dreymir um enn öflugri Aftureldingu

Þórdís hefur mikinn metnað fyrir framtíð Aftureldingar og leggur sérstaka áherslu á mikilvægi öflugs barna- og unglingastarfs.

Hún vill sjá áframhaldandi uppbyggingu á aðstöðu félagsins og aukinn stuðning við starfsemina, enda telur hún að það skili sér í sterkara íþróttastarfi til framtíðar.

Hún nefnir sérstaklega að þjónustubygging og stúka séu löngu tímabærar framkvæmdir fyrir jafn stórt félag og Afturelding er.

Draumurinn er að félagið eigi meistaraflokka í öllum íþróttagreinum sem keppi á hæsta stigi hér á landi. Til þess þurfi þó fyrst að tryggja traustan grunn í barna- og unglingastarfi, góða umgjörð og faglegt utanumhald.

Þegar Þórdís er að lokum spurð hvar hún sjái sig eftir tíu ár segist hún ekki geta spáð fyrir um hvert lífið muni leiða hana.

Eitt er þó víst: Ástríðan fyrir íþróttunum er hvergi á undanhaldi.

Hún nýtur þess að geta sinnt þjálfun samhliða starfi sínu hjá Aftureldingu og dreymir um að ná enn lengra á þeim vettvangi.

Um leið vill hún halda áfram að byggja félagið upp og sjá Aftureldingu vaxa og dafna, jafnt innan vallar sem utan.

Myndatexti : Þórdís María Aikman rekstrarstjóri Aftureldingar hefur fundið draumastarfið í heimabænum þar sem hún sameinar menntun sína, reynslu og ástríðu fyrir íþróttum.


Birt í Mosfellingi 26. nóvember 2026.