Hrafn Ingvarsson er Mosfellingur í húð og hár og hefur verið samofinn handboltasögu Aftureldingar frá unga aldri. Hann hefur spilað fleiri leiki með meistaraflokki karla en nokkur annar í sögu félagsins og á að baki ótal minningar, bæði innan vallar sem utan. Á dögunum var hann heiðraður fyrir framlag sitt til félagsins og fékk afhenta sérstaka treyju merkta þeim 388 leikjum sem hann lék fyrir Aftureldingu. Þótt skórnir séu komnir á hilluna er keppnisskapið enn til staðar og tengslin við félagið jafnsterk og áður.
Það kom aldrei annað félag til greina
„Ég er fyrst og fremst fjölskyldumaður og Mosfellingur með sterkar taugar til Aftureldingar,“ segir Hrafn þegar hann er beðinn um að lýsa sjálfum sér. Hann segist vera félagslyndur, þurfa helst alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og enn búa yfir sama keppnisskapinu og á árum áður. „Ég fæ sem betur fer útrás fyrir það í öðrum miðaldra íþróttum,“ segir hann léttur í bragði.
Handboltinn kom snemma inn í líf Hrafns en hann var aðeins sex eða sjö ára þegar hann hóf æfingar. Íþróttahúsið að Varmá var nánast hans annað heimili og þar eyddi hann ófáum stundum á uppvaxtarárunum. „Þegar ég hugsa til baka var ég eiginlega alltaf í íþróttahúsinu að Varmá. Ég fór með pabba á æfingar og svo á alla leiki hjá meistaraflokknum í gamla salnum. Þar spilaði Viktor, bróðir mömmu, sem var kallaður Slátrarinn.“
Með slíkar fyrirmyndir var framtíðin í handboltanum eiginlega ráðin. „Það var því aldrei spurning hvaða félag ég myndi spila fyrir, það kom ekkert annað til greina en Afturelding.“
Tólf leikir í viðbót væru ágætir
Hrafn lék alls 388 leiki með meistaraflokki Aftureldingar í Íslandsmóti og bikarkeppni og er þar með leikjahæsti leikmaður meistaraflokks karla í sögu félagsins. Hann segir að slíkur áfangi hafi ekki verið ofarlega í huga hans þegar hann var ungur og efnilegur handboltastrákur að stíga sín fyrstu skref. „Þegar ég var yngri hvarflaði þetta ekkert að mér en seinna grunaði mig að ég væri meðal leikjahæstu leikmanna félagsins. Það var virkilega gaman að fá það staðfest og mikil forréttindi að hafa fengið að spila með og kynnast svona mörgum frábærum liðsfélögum í gegnum tíðina.“
Á dögunum heiðraði handknattleiksdeild Aftureldingar tíu leikjahæstu leikmenn félagsins á fjáröflunarkvöldi handboltans. Þar fékk Hrafn afhenta sérstaka treyju með leikjafjöldanum sínum. „Mér þótti virkilega vænt um það. Ég er stoltur af árunum mínum hjá Aftureldingu og það var sérstakt að standa þarna með góðum vinum og frábærum leikmönnum sem hafa gefið félaginu svo mikið.“ Hrafn hefur þó ekki alveg útilokað að bæta örlítið við leikjafjöldann, að minnsta kosti ef réttu aðferðirnar eru notaðar. „Ég þarf kannski að múta núverandi þjálfara til að fá að sitja á bekknum í tólf leiki í viðbót og ná þessu upp í 400 leiki,“ segir hann og hlær.
Sigurmarkið sem gleymist aldrei
Á löngum handboltaferli eru sigrarnir margir, töpin ófá og minningarnar óteljandi. Þegar Hrafn er spurður hvaða leikur standi upp úr þarf hann þó ekki að hugsa sig lengi um. „Það er leikurinn gegn Selfossi í umspilinu um sæti í efstu deild árið 2009.“ Afturelding var tveimur mörkum undir þegar innan við tvær mínútur voru eftir af leiknum en Mosfellingar neituðu að gefast upp og náðu að snúa leiknum sér í hag. „Eftirminnilegast fyrir mig var að skora sigurmarkið þegar ein sekúnda var eftir, fram hjá Basta sem hafði oft reynst mér erfiður,“ segir hann. Sigurmarkið og fagnaðarlætin sem fylgdu eru enn í fersku minni og má meira að segja finna myndband af lokamínútunum á YouTube undir heitinu Lokahnykkurinn.
Það er þó önnur minning frá leiknum sem situr hvað fastast í Hrafni. „Ég man best hvað það var erfitt að ná andanum þegar allt liðið hafði hrúgast ofan á mig í fagnaðarlátunum.“
Þjálfarinn hvarf ofan í ferðatöskuna
Það er auðvitað ekki hægt að rifja upp langan handboltaferil án þess að minnast á allar skrautlegu uppákomurnar sem fylgja ferðalögum og klefalífi. Hrafn segir að sögurnar séu óteljandi en ekki allar birtingarhæfar. „Það eru margar góðar sögur en kannski fæstar sem mér yrði fyrirgefið að kjafta frá.“
Ein saga fær þó að fljóta með. Í einni handboltaferðinni hafði ónefndur þjálfari tekið að sér að halda uppi stuðinu með gítarspili á hótelherbergi. Allt gekk vel þar til hann datt aftur fyrir sig af stólnum og lenti ofan í opinni ferðatösku. „Hann lét það ekkert trufla sig og kláraði lagið með stæl. Það besta var að hann hvarf nánast ofan í töskuna.“
Hrafn segir að á ferlinum hafi hann kynnst mörgum eftirminnilegum karakterum en einn standi þó öðrum framar þegar kemur að sprellinu. „Fremstur meðal jafningja er okkar virðulegi framkvæmdastjóri, Einar Ingi.“ Þeir félagarnir fylgdust að upp alla yngri flokka Aftureldingar og léku einnig saman í unglingalandsliðinu. „Það er óhætt að segja að hann hafi séð til þess að okkur leiddist ekki á ferðalögunum. Ég gæti í fullri hreinskilni skrifað heilt uppistand úr allri vitleysunni sem honum datt í hug.“
Hrafn sjálfur var hins vegar ekki endilega mesti sprelligosinn í liðinu. „Við Böðvar Páll, makkerinn minn í þristinum, vorum svo líklega meðal þeirra sem tóku sig aðeins of alvarlega. Okkur hætti báðum til að hugsa fullmikið og stundum þvældist hausinn fyrir okkur. Við vorum því eflaust best geymdir í vörninni.“
Öskrandi Tasmaníudjöfull í liðinu
Hrafn lýsir sjálfum sér sem fremur rólegum og yfirveguðum leikmanni, þótt hann viðurkenni fúslega að hafa stundum verið nokkuð harður í horn að taka. „Ég gat alveg verið fantur og pínu grófur í vörninni inn á milli.“ Hann segist ekki hafa verið sá háværasti á vellinum en hafi fundið að liðsfélagarnir hlustuðu á hann. Aðrir sáu svo um að halda uppi hávaðanum. „Gunni Malmquist sá til dæmis um hávaðann fyrir okkur báða og gat rifið allt liðið með sér, stundum svo vel að spennustigið varð aðeins of hátt, sérstaklega hjá honum sjálfum.“
Liðsfélagarnir höfðu meira að segja sérstaka samlíkingu fyrir Gunna. „Við í liðinu grínuðumst með að hann væri eins og öskrandi Tasmaníudjöfull, svo það kom í minn hlut að hemja skepnuna og halda skipulaginu.“
Þótt margir sterkir andstæðingar hafi orðið á vegi Hrafns í gegnum tíðina segir hann þann erfiðasta hafa verið sjálfan sig. Hann glímdi við að halda sjálfstraustinu, ekki síst þegar augnsjúkdómur sem hann er með fór að ágerast og hafði áhrif á getu hans til að grípa boltann. „Það hafði töluverð áhrif á mig í sókninni, enda spilaði ég að mestu leyti vörn á síðari árum.“
Eitt lið var þó alltaf sérstaklega ljúft að leggja að velli. „Það var alltaf sérstaklega gaman að vinna Hauka. Þeir reyndust okkur erfiðir í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og við töpuðum allt of mörgum tæpum leikjum gegn þeim, leikjum sem sátu lengi í manni.“
Sigrarnir gegn Haukum voru því þeim mun sætari.
Klefinn var meira en bara klefi
Handboltinn hefur breyst mikið frá því Hrafn steig sín fyrstu skref með Aftureldingu. Leikurinn er orðinn hraðari og reglurnar strangari þegar kemur að varnarleik. „Maður kæmist líklega ekki upp með allt í vörninni sem maður gerði áður,“ segir hann kíminn.
En þegar hann hugsar til baka er það ekki endilega leikurinn sjálfur sem hann saknar mest, heldur félagsskapurinn. „Það sem ég sakna mest er samt klefinn eftir æfingar og leiki. Við héngum oft í tvo til þrjá klukkutíma eftir æfingar, bara að spjalla og grínast.“
Hann rifjar upp orð Kára Kristjánssonar sem lýsa þessu vel: „Þú getur tekið leikmanninn úr klefanum en ekki klefann úr leikmanninum.“
Og þótt Hrafn hafi fengið að spila með mörgum frábærum handboltamönnum er það ákveðinn hópur sem skipar sérstakan sess í hjarta hans. Þegar hann er beðinn um að velja fimm leikmenn í draumaliðið sitt vill hann helst fá að spila einn leik í viðbót með strákunum sem hann ólst upp með. „Við unnum flest sem hægt var að vinna í yngri flokkunum og áttum svo þátt í að koma Aftureldingu á þann stað sem félagið er á í dag.“
Vill gefa félaginu eitthvað til baka
Þótt Hrafn sé hættur að spila hefur hann hvergi nærri sagt skilið við Aftureldingu. Hann hefur einnig komið að stjórnun félagsins og segir það mikilvægt fyrir sig að leggja áfram sitt af mörkum. „Þegar ég spilaði gerði ég mér því miður ekki alltaf grein fyrir því hversu mikil vinna fer í að halda liði gangandi og hvað sjálfboðaliðarnir leggja mikið á sig. Ég fékk þau forréttindi að alast upp í Mosfellsbæ og innan Aftureldingar og vil því leggja mitt af mörkum svo komandi kynslóðir fái sömu tækifæri. Þetta er mín leið til að reyna að gefa aðeins til baka.“
Handboltinn hefur líka gefið honum margt sem ekki verður talið í sigrum, töpum eða leikjafjölda. Þar nefnir hann sérstaklega sambandið við Jenna bróður sinn. „Það sem mér þykir sérstaklega vænt um er að hafa fengið að deila þessum tíma með Jenna bróður mínum. Við æfðum saman í mörg ár og svo var hann sjúkraþjálfari liðsins mestallan minn feril.“
Þessar sameiginlegu minningar segir Hrafn vera meðal þess dýrmætasta sem handboltinn hafi fært honum.
Fjölskyldulíf, hugbúnaður og Ultraform
Utan handboltans er nóg um að vera hjá Hrafni. Hann er í sambúð með Maríu Kjartansdóttur og saman eiga þau stórt og líflegt heimili. „Ég á tvo stráka og fékk svo tvær stjúpdætur í kaupbæti, þannig að það er yfirleitt nóg um að vera hjá okkur.“
Hrafn starfar í hugbúnaðargeiranum hjá Tegra en hefur einnig fundið sér nýjan vettvang fyrir hreyfingu og keppnisskap. „Konan dró mig inn í Ultraform, þar sem við eyðum miklum tíma í að þjálfa og æfa sjálf.“ Þegar tími gefst til fer fjölskyldan í ferðalög og Hrafn reynir að komast í golf.
Ekki taka sjálfan þig svona alvarlega
Þegar Hrafn lítur til baka yfir ferilinn er ljóst að handboltinn hefur mótað hann á margan hátt. Hann hefur lært að takast á við mótlæti, fagna sigrum, vinna með öðrum og ekki síst að meta félagsskapinn. En ef hann gæti farið aftur í tímann og hitt unga Hrafn, sem var að stíga sín fyrstu skref í handboltanum að Varmá, hvað myndi hann segja við hann? Svarið kemur án mikillar umhugsunar. „Ekki taka sjálfan þig svona alvarlega og ekki ofhugsa hlutina. Leyfðu þér smá vitleysu, þú átt eftir að muna betur eftir henni en öllu því sem þú hafðir áhyggjur af.“
Og kannski er það einmitt það sem stendur eftir þegar horft er yfir 388 leiki í rauðu treyjunni. Ekki bara mörkin, sigrarnir eða viðurkenningarnar, heldur vináttan, hláturinn, ferðalögin og allar sögurnar sem verða til á leiðinni.
Þrátt fyrir að Hrafn sé hættur að spila handbolta er Afturelding enn stór hluti af lífi hans og hver veit nema hann eigi eftir að bæta tólf leikjum við ferilinn – ef honum tekst að sannfæra þjálfarann.