Mosfellingur
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail

Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2026

4. október, 2026

Ilmreynir í Merkjateigi, garður í Furubyggð og Reykjabúið hlutu viðurkenningar

Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2026 voru afhentar við hátíðlega athöfn í Hlégarði fimmtudaginn 27. ágúst, þegar bæjarhátíðin Í túninu heima var formlega sett. Skipulags- og umhverfisnefnd Mosfellsbæjar sá um valið og voru að þessu sinni veittar viðurkenningar í þremur flokkum: tré ársins, garður ársins og fyrirtæki til fyrirmyndar.

 

Diljá Rún Hjördísardóttir tók við viðurkenningunni Tré ársins ásamt dóttur sinni

Ilmreynir í Merkjateigi tré ársins

Verðlauna Ilmreynir

Tré ársins 2026 er stór og glæsilegur ilmreynir sem stendur í einkagarði á horni Merkjateigs og Jónsteigs. Tréð hefur lengi vakið athygli vegfarenda og er mikil prýði fyrir umhverfið.

Reynirinn er með einstaklega fallega og þétta krónu og skartar hvítum og ilmandi blómum snemma sumars. Á haustin myndast síðan glansandi rauð ber sem fuglar sækja mikið í. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær tréð var gróðursett en talið er að það sé um 50 ára gamalt.

Í rökstuðningi nefndarinnar kemur fram að tréð sé gott dæmi um hvað hægt sé að skapa þegar vel er hlúð að gróðri til langs tíma.

Diljá Rún Hjördísardóttir tók við viðurkenningunni fyrir tré ársins ásamt dóttur sinni.

 

Áslaug Kirstín Ásgeirsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir Garð ársins.

Ævintýralegur garður í Furubyggð

Verðlaunagarður Áslaugar

Viðurkenninguna Garður ársins hlaut garðurinn við Furubyggð 1. Honum er lýst sem einstaklega fallegum og ævintýralegum garði þar sem mikil vinna og umhyggja sé lögð í hvert smáatriði.

Í garðinum má finna fjölbreytt úrval sumarblóma, lauka og fjölæringa sem blómstra á mismunandi tímum árs. Þar eru einnig tré og runnar sem taka breytingum með árstíðunum og fjölmargir berjarunnar, meðal annars rifsber, sólber og jarðarber.

Í gróðurhúsi eru ræktuð blæjuber, brómber og fleira og mikil áhersla er lögð á matjurtarækt. Nýting er stór þáttur í garðinum; mikið er matreitt og sultað úr uppskerunni og lífrænn úrgangur fer aftur út í garðinn í formi moltu.

Nefndin lýsir garðinum sem sannkölluðum fyrirmyndargarði með sitt eigið hringrásarkerfi. Áslaug Kirstín Ásgeirsdóttir tók við viðurkenningunni.

Hjónin Jón Magnús Jónsson og Kristín Sverrisdóttir, eigendur Reykjabúsins, fengu viðkenninguna Fyrirtæki til fyrirmyndar

Reykjabúið fyrirtæki til fyrirmyndar

Reykjabúið er til fyrirmyndar

Reykjabúið hlaut viðurkenningu sem fyrirtæki til fyrirmyndar. Í umsögn nefndarinnar kemur fram að fyrirtækið hafi um árabil sýnt ábyrgð og metnað í umhverfismálum samhliða rótgrónum landbúnaðarrekstri í Mosfellsbæ.

Áhersla er lögð á góða nýtingu auðlinda og hringrásarhugsun, meðal annars með nýtingu lífræns úrgangs og búfjáráburðar til áburðar og uppgræðslu.

Þá hefur markvisst verið unnið að umbótum í meðhöndlun úrgangs, fráveitu og loftgæðum og öðrum þáttum sem draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar.

Hjónin Jón Magnús Jónsson og Kristín Sverrisdóttir, eigendur Reykjabúsins, tóku við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins.

 

 

_Ljósmyndari Helga Dögg Reynisdóttir

https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/10/Hjonin-Jon-Magnus-Jonsson-og-Kristin-Sverrisdottir-eigendur-Reykjabusins-fengu-vidkenninguna-Fyrirtaeki-til-fyrirmyndar__Ljosmyndari-Helga-Dogg-Reynisdottir.jpg 1829 2560 mosfellingur https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/04/mosfellingur-logo.jpg mosfellingur2026-10-04 12:00:522026-10-03 17:04:31Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2026

Bæjarblaðið Mosfellingur

Mosfellingur er frítt, óháð bæjarblað sem miðlar jákvæðum fréttum og sögum úr Mosfellsbæ. Blaðið kemur út mánaðarlega og er dreift á öll heimili og flest fyrirtæki í bænum. Á vefnum birtum við valdar fréttir og greinar úr blaðinu.
Ad
Ad
Mosfellingur ehf - Gerplustræti 4 - kt. 470426-3490 - VSK-nr. 161122 - [email protected] - Enfold WordPress Theme by Kriesi
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
Link to: Ketill Ágústsson nýr brekkusöngvari í Túninu heima Link to: Ketill Ágústsson nýr brekkusöngvari í Túninu heima Ketill Ágústsson nýr brekkusöngvari í Túninu heima Link to: Vorið vaknar hjá Leikfélagi Mosfellssveitar Link to: Vorið vaknar hjá Leikfélagi Mosfellssveitar Vorið vaknar hjá Leikfélagi Mosfellssveitar
Scroll to top Scroll to top Scroll to top