Mosfellingur
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail

Ketill Ágústsson nýr brekkusöngvari í Túninu heima

4. október, 2026

Ketill Ágústsson verður tvítugur í desember og segist fátt elska meira en að spila og syngja.

Það urðu ákveðin kynslóðaskipti í Álafosskvosinni á bæjarhátíðinni Í túninu heima þegar hinn 19 ára Ketill Ágústsson tók við brekkusöngnum af Hilmari Gunnarssyni bæjarstjóra, sem hafði haldið utan um sönginn í 20 ár.

Ketill þurfti þó ekki langan tíma til að vinna Mosfellinga á sitt band og þegar þétt setin brekkan tók undir í fyrsta lagi kvöldsins hvarf stressið eins og dögg fyrir sólu.

Ketill Ágústsson verður tvítugur í desember og segist fátt elska meira en að spila og syngja. Hann ólst upp í Reykjavík með móður sinni og þremur systkinum en faðir hans er bóndi í Flóahreppi og býr þar ásamt fjölskyldu sinni.

Þótt Ketill sé ekki búsettur í Mosfellsbæ er hann tíður gestur í bænum og segist hreinlega dýrka Mosó. Þar á besti vinur hans, Aron Valur, heima og saman hafa þeir félagarnir staðið fyrir ýmsum viðburðum og uppákomum.

Laumaði sér að bæjarstjóranum

Það má segja að Ketill hafi sjálfur plantað fræinu að nýja hlutverkinu. Þegar Hilmar Gunnarsson hafði nýlega tekið við sem bæjarstjóri fóru Ketill og Aron heim til hans seint eitt kvöld til að óska honum til hamingju.

„Ég var með gítarinn og við sungum lag fyrir hann. Síðan sagði Hilmar mér að hann ætlaði að leggja gítarinn aðeins á hilluna varðandi brekkusönginn. Þá laumaði ég því að honum að hafa mig á bak við eyrað, ég væri alltaf klár.“

Skömmu síðar hringdi síminn. Arnar Jónsson bauð Katli að taka við brekkusöngnum og svarið stóð ekki á sér.

„Ég sagði já um leið, án þess að hugsa mig um.“

Það var þó ekki fyrr en síðar sem Ketill áttaði sig almennilega á því hversu langri hefð hann væri að taka við.

„Ég vissi ekki einu sinni að Hilmar hefði stýrt þessu í 20 ár. Ég er bara 19 ára og verð tvítugur í desember, þannig að það er eiginlega ótrúlegt að þeir treysti mér fyrir þessu. Þetta er mikill heiður.“

Ketill Ágústsson tók við brekkusöngnum af Hilmari Gunnarssyni

 

Stressið hvarf í fyrsta laginu

Þegar stóra kvöldið rann upp lét stressið á sér kræla, sérstaklega síðustu 15–30 mínúturnar áður en Ketill steig á svið.

„Það var líka svo kalt og það er alls ekki gott þegar maður er að fara að spila á gítar,“ segir hann.

En um leið og fyrstu tónarnir í Minningu um mann hljómuðu yfir Álafosskvosina breyttist allt.

„Brekkan tók svo svakalega vel undir að stressið hvarf. Þá vissi ég að þetta stefndi í gott kvöld.“

Eitt kom hinum unga söngstjóra sérstaklega á óvart – hversu vel yngsta kynslóðin kunni gömlu lögin.

„Krakkarnir og unga fólkið fremst á svæðinu kunnu lögin og textana ótrúlega vel. Ég bjóst alls ekki við því.“

Og tilfinningin að horfa yfir troðfulla Álafosskvosina?

„Geggjuð. Mér leið smá eins og rokkstjörnu. Nú hef ég fengið smjörþefinn af því hvernig það er að vera á Wembley og syngja fyrir fullan völl af fólki. Það er næst á dagskrá hjá mér,“ segir Ketill og hlær.

Gömlu góðu lögin verða að fá að vera með

Það reyndist töluvert púsluspil að velja lög fyrir kvöldið. Ketill segir mikilvægt að finna jafnvægi milli kynslóða.

„Maður verður að vera með eitthvað af gömlu lögunum, eitthvað af nýju og svo syrpur. Síðan eru auðvitað þessi klassísku lög sem allir kunna. Þau verða að vera með.“

Hilmar sendi arftaka sinn líka af stað með góð ráð: Halda í gömlu góðu lögin – en passa jafnframt að syngja ekki öll fimm erindin í Minningu um mann eða Þórsmerkurljóði.

Það var þó eitt lag sem virtist öðrum fremur kveikja í Mosfellingum.

„Ég heyrði langmestu lætin í Bíddu pabbi, bíddu mín. Það var rosalegt!“

Sjálfur syngur Ketill á hverjum degi og gítarinn er sjaldan langt undan. Tónlistaruppeldið er fjölbreytt og nefnir hann meðal annars Bubba Morthens, Bítlana, Oasis, Dire Straits, Nýdönsk og Bob Dylan. Þessa dagana fá Michael Bublé, Oasis, Rolling Stones og Kim Larsen mikið að hljóma en meðal íslenskra uppáhaldstónlistarmanna eru Bubbi, KK, Magnús Eiríksson, Friðrik Dór og Nói Klose.

„Ég hlusta gríðarlega mikið á tónlist, kannski eiginlega of mikið. Ég er stundum hræddur um að ég steiki á mér heilann með þessu einn daginn.“

Það var mikil stemning í brekkunni og fólk mjög sátt við Ketil sem arftaka

Gítar, míkrófónn og allir syngja með

Ketill er tilbúinn að mæta aftur í Álafosskvosina að ári ef Mosfellingar vilja halda honum.

„Klárlega! Ef þið eruð til, þá er ég til.“

Hann ætlar þó ekki að umbylta þessari gömlu Mosó-hefð.

„Ég veit ekki hversu mikið maður á að hrista upp í þessu. Er þetta ekki bara einfalt? Gítar, míkrófónn og allir að skemmta sér og syngja með.“

Og þegar Ketill er spurður hvaða lag sé hið fullkomna brekkusöngslag í Mosfellsbæ þarf hann ekki að hugsa sig lengi um.

„Týnda kynslóðin. Þegar ég hugsa um Mosó hugsa ég um þetta lag. Það var líka tryllt stemning þegar ég tók það.“

Ef Wembley-draumurinn rætist einhvern tímann er því kannski ekki úr vegi að vona að Ketill taki smá bút af Álafosskvosinni með sér þangað.

https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/10/IMG_0200.jpeg 1441 2167 mosfellingur https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/04/mosfellingur-logo.jpg mosfellingur2026-10-04 09:00:512026-10-03 17:02:28Ketill Ágústsson nýr brekkusöngvari í Túninu heima

Bæjarblaðið Mosfellingur

Mosfellingur er frítt, óháð bæjarblað sem miðlar jákvæðum fréttum og sögum úr Mosfellsbæ. Blaðið kemur út mánaðarlega og er dreift á öll heimili og flest fyrirtæki í bænum. Á vefnum birtum við valdar fréttir og greinar úr blaðinu.
Ad
Ad
Mosfellingur ehf - Gerplustræti 4 - kt. 470426-3490 - VSK-nr. 161122 - [email protected] - Enfold WordPress Theme by Kriesi
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
Link to: Nýbúinn: Hér ætlum við að festa rætur og verða gömul Link to: Nýbúinn: Hér ætlum við að festa rætur og verða gömul Nýbúinn: Hér ætlum við að festa rætur og verða gömul Link to: Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2026 Link to: Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2026 Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2026
Scroll to top Scroll to top Scroll to top