Samgöngumál – framtíðarsýn

Undanfarin ár hefur umferð um
Vesturlandsveg aukist verulega,
biðraðir lengjast og umræðan tak
markast við – fleiri akreinar, fleiri
bílastæði. Við leggjumst ekki á
móti fleiri bílastæðum, en slík
nálgun leysir þó ekki grunnvand
ann til lengri tíma, heldur þarf
skýra og hugrakka framtíðarsýn.
Í burðarliðnum eru stór innviða
verkefni á borð við Sundabraut
og Borgarlínu. Þau munu skipta
miklu fyrir höfuðborgarsvæðið í
heild sinni. Sundabraut mun draga
úr gegnumstreymisumferð um
Mosfellsbæ og Borgarlínan skapar
raunhæfan valkost fyrir marga
að skilja bílinn eftir heima hluta
vikunnar og létta þannig á núverandi og
komandi umferðarþunga. Hvorug þessara
hringrás milli hverfa, án þess að
innanbæjarumferð fari um Vestur
landsveg. Við það skapast grund
völlur fyrir skilvirkt almennings
samgöngukerfi innan bæjarins,
sem tengir skóla, íþróttasvæði
og þjónustu saman og stuðlar að
raunverulegu jafnvægi milli ferða
máta og flæði á milli hverfishluta.
Samhliða þessari þróun mun
Vesturlandsvegur lagður í stokk
við miðbæinn og binda þann
bæjarhluta saman í sterkum þjón
ustukjarna. Með þessari sýn fær
bærinn að þróast með fjölbreytt
ara og skilvirkara samgöngukerfi
í grunninn.
Framtíðarsýnin þarf einnig að birtast í
aðgerðum hér og nú
framkvæmda er þó töfralausn fyrir Mosfell
inga innanbæjar, heldur hluti af víðtækara
samspili aðgerða sem þarf að grípa til í ljósi
íbúafjölgunar á höfuðborgarsvæðinu, sem
við erum hluti af.
Í nærsvæði Vesturlandsvegar er mikil
íbúauppbygging áformuð og gert ráð
fyrir um 9000 nýjum íbúum í Blikastaða
landi og um 24.000 íbúum í næsta ná
grenni í Reykjavík, Höllum í Úlfarsárdal
og Keldnalandi. Samanlagt fleiri nýir íbúar
en heildaríbúafjöldi Hafnarfjarðar í dag.
Þessi hverfi munu hafa bein áhrif á um
ferðarþunga inn á Vesturlandsveg og auka
á álagið þar. Mosfellsbær býr jafnframt yfir
einstöku byggingarlandi og möguleikum til
að vaxa til lengri tíma, án þess að þéttleiki
verði sambærilegur við nágrannasveitar
félög. Til að slíkur vöxtur verði sjálfbær
þarf heildstæða framtíðarsýn á samgöngur
og skipulag.
Kjarni stefnu Samfylkingarinnar í sam
göngu- og skipulagsmálum er fjölkjarna
hringrásarskipulag. Að inntaki þýðir það
að nýjar innanbæjarleiðir tengja nýja og
eldri hverfishluta saman, nokkurs konar
Ef ætlunin er að breyta ferðavenjum til
framtíðar verðum við að byrja snemma –
hjá börnunum. Í dag er frítt fyrir börn til
11 ára aldurs en börn eldri en 12 ára greiða
hálft fargjald í strætó. Borið hefur á því að
börnum á grunnskólaaldri í Mosfellsbæ
hafa verið vísað úr strætisvögnum á leið í
og úr grunnskóla eða frístundir, hafi þau
ekki getað sýnt fram á greiðslu. Það er óá
sættanlegt. Samfélag sem skilur börn eftir,
glatar áttum. Gerum almenningssamgöng
ur fríar fyrir börn.
Þó ný hringleið strætó um Mosfellsbæ
verði ekki að veruleika strax þarf skýra
framtíðarsýn, en byrja þarf strax að fjárfesta
í framtíðarfarþegum. Börn sem alast upp
við að almenningssamgöngur séu sjálf
sagður og öruggur kostur eru líklegri til að
velja þær síðar á lífsleiðinni. Mosfellsbær
getur tekið forystu og sýnt að metnaður
í samgöngumálum og velferð barna fari
saman.
Ómar Ingþórsson og Auður Einarsdóttir
skipa þriðja og fjórða sæti á lista
Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ