Framtíðarsýn Mosfellsbæjar í íþróttum og tómstundum
Samfylkingin í Mosfellsbæ vill
móta skýra og metnaðarfulla
íþrótta- og tómstundastefnu sem
byggir á einfaldri en sterkri hugsun
um að íþróttir og tómstundir séu
fyrir öll. Samfylkingin vill samfélag
þar sem öll börn og ungmenni hafa
tækifæri til þátttöku óháð efnahag,
bakgrunni eða getu. Íþróttir og
tómstundir eru lykilþættir í lýð
heilsu, forvörnum og félagslegum
tengslum.
Samfylkingin telur að samráð
og samstarf sé lykillinn að árangri.
Þess vegna viljum við vinna náið
með íþróttafélögum, Listaskól
anum, leik- og grunnskólum,
foreldrum, þjálfurum og ekki síst
börnum og ungmennunum sjálfum. Árang
ursrík íþrótta- og tómstundastefna verður
til á breiðum grunni með virku samtali við
öll sem koma að íþróttum og tómstundum
barna og ungmenna í Mosfellsbæ.
Jöfn tækifæri og aðgengi fyrir öll
Samfylkingin leggur sérstaka áherslu á að:
• öll börn hafi aðgang að íþróttum og tóm
stundum í sínu nærumhverfi
• Samfylkingin ætlar hækka frístunda
styrkinn í Mosfellsbæ til að tryggja að
kostnaður standi ekki í vegi fyrir þátt
töku barna og ungmenna.
• fjölbreyttar íþróttagreinar og tómstundir
séu í boði
• börn fái tækifæri til að prófa sig áfram og
finna sína leið
Það skiptir máli að öll börn finni sig í
íþróttum og tómstundum ekki bara þau
sem stefna á afreksferil, heldur líka þau
sem vilja hreyfa sig, eiga vini og njóta sín.
Íþróttir og tómstundir í Mosfellsbæ eiga að
vera fyrir öll börn og ungmenni óháð getu.
Eins eiga fötluð börn að taka þátt á sama
grunni og önnur. Til þess þarf að tryggja að
aðstaða og búnaður nýtist öllum, að þjálf
arar og aðrir hafi þekkingu og stuðning og
að skipulag sé sveigjanlegt og inngildandi.
Með skýrum stuðningi frá Mosfellsbæ og
góðu samstarfi við íþróttafélög og
kennara verður þátttaka fatlaðra
barna eðlilegur hluti af starfinu.
Samfylkingin vill gera öllum
íþróttagreinum og tómstundum
hátt undir höfði. Mosfellsbær á að
styðja við bæði hefðbundnar og
nýjar greinar, skapa jafnræði milli
félaga og tryggja stuðning við upp
byggingu.
Sterk umgjörð og faglegt starf
Öflug íþrótta- og tómstundastefna
krefst góðrar aðstöðu, fagmensku,
þekkingar, færni og skýrrar sýnar.
Samfylkingin vil styrkja umgjörð
íþrótta og tómstunda þannig að
hún styðji bæði við breidd og af
rek og tryggi að börn og ungmenni haldist
sem lengst í íþróttum og tómstundum. Við
stefnum jafnframt að því að finna Lista
skóla Mosfellsbæjar framtíðar húsnæði
sem styður við öflugt og metnaðarfullt starf
hans.
Hluti af sterkri framtíðarsýn fyrir Mos
fellsbæ
Íþrótta- og tómstundastefna er hluti af
stærri sýn Samfylkingar um samfélag þar
sem:
• lýðheilsa, forvarnir og vellíðan eru í for
grunni
• samfélagið er inngildandi
• börn, ungmenni og fjölskyldur fá við
eigandi stuðning til að efnahagur standi
ekki í vegi fyrir íþróttaiðkun
Enn betri Mosfellsbær fyrir öll
Með skýrri stefnu, breiðu samráði og
sterkri sýn byggjum við samfélag þar sem
öll börn og ungmenni fá tækifæri til að taka
þátt, njóta sín og blómstra.
Guðný Maja Riba, kennari og
fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík,
og
Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson,
efnaverkfræðingur skipa 2. og 5.sæti á
lista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ





