Mosfellingur
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail

Nýbúinn: Hér ætlum við að festa rætur og verða gömul

3. október, 2026

Ljósmynd Hulda Margrét. http://huldamargret.is

Guðný Maja Riba flutti ásamt fjölskyldu sinni úr Reykjavík í Mosfellsbæ í desember síðastliðnum og segir flutninginn hafa verið nokkuð óvæntan. Fjölskyldan fann draumaeignina í Helgafellslandi og síðan þá hefur Guðný heldur betur kastað sér inn í Mosó-lífið. Hún kennir í Varmárskóla, situr í velferðarnefnd og er varabæjarfulltrúi. Hún er búin að fjárfesta í Aftureldingartreyju, mæta í Álafosskvos og auglýsir nú eftir saumaklúbbi. Það verður því varla annað sagt en að aðlögunin gangi vel.

Guðný Maja er gift Vigni Hreinssyni, móðir Óla Pedros og á auk þess þrjá stjúpsyni. Hún lýsir sjálfri sér sem opinni, hlýrri og skemmtilegri manneskju sem hafi ríka þörf fyrir að láta gott af sér leiða.

„Ég reyni að hafa jákvæð áhrif á samfélagið og svo elska ég auðvitað að vera í góðum félagsskap,“ segir Guðný.

Hún er alin upp á Akureyri en fjölskyldan bjó í Reykjavík áður en leiðin lá í Mosfellsbæ. Flutningurinn hingað var þó ekki hluti af margra ára plani.

„Við höfðum hvorugt sérstaka tengingu við Mosfellsbæ. Þegar við fórum að leita að eign fyrir fjölskylduna skoðuðum við af einhverjum ástæðum bara hús í Mosfellsbæ og fundum síðan draumaeignina í Helgafellslandi. Við sjáum alls ekki eftir því.“

Guðný Maja er gift Vigni Hreinssyni

Keypti Aftureldingartreyjuna

Guðný segir fyrstu kynni fjölskyldunnar af bænum hafa verið einstaklega góð. Fólkið, samfélagið og náttúran hafi tekið vel á móti þeim og samheldnin hafi komið henni sérstaklega á óvart.

„Ég finn sterkt fyrir því að fólk þekkist og lætur sig hvert annað varða. Það er dásamlegt að fá að verða hluti af slíku samfélagi.“

En hvenær verður nýr íbúi eiginlega að alvöru Mosfellingi? Guðný telur sig geta bent á tvö ákveðin augnablik.

„Þegar ég keypti mína fyrstu Aftureldingartreyju fyrir úrslitaleikinn í Mjólkurbikarnum og þegar ég mætti í Álafosskvosina þegar Í túninu heima stóð sem hæst. Það var góð tilfinning.“

Akureyri og Mosfellsbær eiga að hennar mati ýmislegt sameiginlegt. Á báðum stöðum sé samfélagið minna og nálægðin við fólkið meiri en hún hafði vanist í Reykjavík.

Einn kostur Mosó-lífsins er líka óneitanlega stuttur ferðatími.

„Það tekur mig bara þrjár mínútur að keyra í vinnuna. Svo er það allt frábæra fólkið sem ég hef kynnst hér og ég er sannfærð um að hér hafi ég eignast vini og fjölskyldu til frambúðar.“

Og borgarlífið virðist ekki toga sérstaklega sterkt í hana. „Ef mig vantar eitthvað eða fæ löngun í eitthvað úr Reykjavík, þá keyri ég einfaldlega Vesturlandsveginn og sæki það.“

Fjölskyldan ætlar að skjóta rótum í Mosfellsbæ

Óskar eftir inngöngu í saumaklúbb

Starfið sem umsjónarkennari í Varmárskóla hefur hjálpað Guðnýju mikið við að kynnast nýja samfélaginu. Hún segir starfsfólkið hafa tekið einstaklega vel á móti sér og hlakkar til vetrarins með nemendum og samstarfsfólki.

Hún ætlar þó ekki að láta þar við sitja þegar kemur að því að kynnast Mosfellingum.

„Ég reyni að vera virk, taka þátt og mæta á viðburði. Ég stefni líka á að byrja í hreyfihóp og gryfjubolta til að kynnast enn fleira fólki.“

Svo kemur ákall til lesenda Mosfellings:

„Ég ætla kannski að nýta tækifærið hér og óska eftir inngöngu í saumaklúbb í Mosfellsbæ. Ég er mjög hress og skemmtileg, ég lofa því!“

Hún á þó enn nokkur verkefni eftir áður en hægt verður að útskrifa hana formlega sem Mosfelling. Fjöllin bíða eftir henni og sömuleiðis golfvöllurinn.

„Ég á enn eftir að ganga á flest fellin hér og komast almennilega í golfið. Ég er nokkuð viss um að á næstu mánuðum nái ég að klífa nokkur fell og næsta sumar verð ég mætt á golfvöllinn.“

Nýflutt og strax komin á strætóskýlin

Guðný lét ekki nægja að flytja í bæinn heldur kastaði sér nánast samstundis út í bæjarmálin. Hún skipaði annað sæti lista Samfylkingarinnar í síðustu sveitarstjórnarkosningum og segir kosningabaráttuna hafa verið hálfgert hraðnámskeið í Mosfellsbæ.

„Ég fékk einstakt tækifæri til að ræða við og kynnast hundruðum Mosfellinga. Kosningabaráttan var því líka ágætis kynning á mér – nýfluttri í bæinn og strax komin á strætóskýli og flettiskilti!“

Í dag situr hún í velferðarnefnd og er varabæjarfulltrúi. Hún segist ætla að halda áfram að vinna að þeim málefnum sem henni séu kær og Mosfellingum til heilla.

Veiðin er alltaf góð

Alltaf sól í Mosó

Guðný á sér nú þegar sína uppáhaldsstaði í bænum og fjölskyldan er tíður gestur á Oak. Ef hún fengi það verkefni að kynna Mosfellsbæ fyrir ókunnugum myndi dagskráin þó hefjast utandyra.

Fyrst væri gengið upp að Reykjaborg til að njóta útsýnisins, síðan haldið í Álafosskvos og komið við í Mosfellsbakaríi. Þaðan lægi leiðin um Mosfellsdalinn, viðkomustaður yrði Gljúfrasteinn og dagurinn endaði á notalegri stund á Oak.

Hinn fullkomni laugardagur er hins vegar öllu einfaldari.

„Tóm þvottakarfa, nýbakað brauð sem Vignir bakar, köld Pepsi Max og fallega útsýnið úr stofuglugganum. Svo sund í Lágafellslaug með fjölskyldunni og grill í sólinni á pallinum.“

Og Guðný er þegar búin að tileinka sér ákveðna bjartsýni sem sumir myndu kalla dæmigerða Mosó-bjartsýni.

„Það er enda næstum alltaf sól í Mosó. Og ef það er ekki sól, þá er alltaf sól í hjartanu meðan þú ert í Mosfellsbæ,“ segir hún og brosir.

Þrátt fyrir að fjölskyldan hafi aðeins búið í bænum frá því í desember er framtíðaráætlunin þegar nokkuð skýr.

„Hér ætlum við að búa, festa rætur og verða gömul – enda er gott að eldast í Mosfellsbæ.“

Og þegar hún er beðin um að ljúka setningunni „Það besta við Mosó er…“ þarf hún ekki að hugsa sig lengi um:

„Fólkið, samheldnin og tilfinningin fyrir því að hér tilheyri maður fjölbreyttu og frábæru samfélagi.“

https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/10/G8A4076-2-scaled.jpeg 1707 2560 mosfellingur https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/04/mosfellingur-logo.jpg mosfellingur2026-10-03 17:01:462026-10-03 17:02:53Nýbúinn: Hér ætlum við að festa rætur og verða gömul

Bæjarblaðið Mosfellingur

Mosfellingur er frítt, óháð bæjarblað sem miðlar jákvæðum fréttum og sögum úr Mosfellsbæ. Blaðið kemur út mánaðarlega og er dreift á öll heimili og flest fyrirtæki í bænum. Á vefnum birtum við valdar fréttir og greinar úr blaðinu.
Ad
Ad
Mosfellingur ehf - Gerplustræti 4 - kt. 470426-3490 - VSK-nr. 161122 - [email protected] - Enfold WordPress Theme by Kriesi
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
Link to: Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2026 – Jakob Smári Magnússon Link to: Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2026 – Jakob Smári Magnússon Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2026 – Jakob Smári Magnússon Link to: Ketill Ágústsson nýr brekkusöngvari í Túninu heima Link to: Ketill Ágústsson nýr brekkusöngvari í Túninu heima Ketill Ágústsson nýr brekkusöngvari í Túninu heima
Scroll to top Scroll to top Scroll to top