Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2026 – Jakob Smári Magnússon

Jakob Smári Magnússon bæjarlistamaður 2026 ásamt fjölskyldu sinni. Jakob á að baki glæsilegan feril sem bassaleikari sem spannar rúm 40 ár.
Yfir 40 ár í íslensku tónlistarlífi
Jakob Smári Magnússon á að baki glæsilegan feril sem bassaleikari sem spannar rúm 40 ár og hefur hann á þeim tíma leikið með fjölmörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins.
Hann var einn af stofnmeðlimum Tappa Tíkarrass, einnar áhrifamestu pönkhljómsveitar Íslands, þar sem Björk Guðmundsdóttir var söngkona. Síðar lék hann meðal annars með Bubba Morthens í hljómsveitunum Das Kapital og Egó auk þess sem bassaleik hans má heyra á fjölmörgum sólóplötum Bubba.
Jakob Smári er jafnframt einn af stofnendum hljómsveitarinnar SSSól og hefur hann einnig leikið með Grafík, Pláhnetunni og fleiri hljómsveitum í gegnum tíðina.
Ferillinn hefur náð langt út fyrir landsteinana en Jakob Smári starfaði með bandaríska tónlistarmanninum John Grant í sjö ár og ferðaðist með honum um heiminn við tónleikahald.

Valdimar Breiðfjörð Birgisson formaður menningar-, íþrótta- og lýðheilsunefndar, Jakob Smári Magnússon bæjarlistamaður og Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Með útnefningunni bætist Jakob Smári í hóp þeirra fjölmörgu listamanna sem hlotið hafa nafnbótina bæjarlistamaður Mosfellsbæjar í gegnum tíðina.




