Mikil ánægja með Tindahlaupið
Tindahlaup Mosfellsbæjar heldur áfram að vaxa og dafna en í ár tóku 460 hlauparar þátt. Í fyrsta sinn var lögð viðhorfskönnun fyrir þátttakendur eftir hlaupið og niðurstöðurnar sýna mikla ánægju.
Tindahlaupið er orðið einn af stærri viðburðum bæjarhátíðarinnar Í túninu heima og er skipulagt af Mosfellsbæ í samstarfi við blakdeild Aftureldingar og björgunarsveitina Kyndil.
Alls bárust 184 svör við könnuninni og voru niðurstöðurnar almennt mjög jákvæðar. Þátttakendur lýstu meðal annars ánægju með brautarvörslu, stemningu og utanumhald hlaupsins.
Sérstaklega vekur athygli að um 85% þeirra sem svöruðu sögðust ætla að mæta aftur að ári, sem gefur skýrt til kynna að hlaupið hafi fest sig í sessi hjá þátttakendum.
Könnunin gaf skipuleggjendum jafnframt gagnlegar ábendingar um hvað mætti bæta enn frekar. Meðal þess sem nefnt var voru skýrari brautarmerkingar, betri upplýsingagjöf fyrir hlaupið og mögulegar breytingar á hlaupaleiðum. Þá komu fram ábendingar um að draga mætti úr malbikshlaupi, meðal annars í fimm tinda leiðinni.
Skipuleggjendur hyggjast nýta næstu mánuði til að fara yfir ábendingarnar og þróa hlaupið áfram.
Tindahlaupið virðist því bæði laða að sér sífellt fleiri þátttakendur og byggja upp sterkan hóp hlaupara sem vilja snúa aftur ár eftir ár.





