Yfir 30 milljónir safnast til uppbyggingar í Reykjadal
Góður árangur hefur náðst í söfnunarátaki Reykjadals í Mosfellsdal en yfir 30 milljónir króna hafa safnast frá því átakið Sumargjöf Reykjadals hófst á sumardaginn fyrsta. Söfnunin er liður í umfangsmikilli uppbyggingu á svæðinu þar sem stefnt er að því að reisa nýjan og glæsilegan matsal með eldhúsi og bættri aðstöðu.
Árangurinn í sumar gerir Gló stuðningsfélagi kleift að hefja fyrsta áfanga framkvæmdanna nú í október. Þar verður ráðist í undirbúningsvinnu og niðurrif eldri byggingar sem er komin til ára sinna og mun víkja fyrir nýju viðbyggingunni.
Ný 375 fermetra viðbygging
Áformað er að nýbyggingin verði um 375 fermetrar að stærð og þar verði meðal annars rúmgóður matsalur, nýtt eldhús og aðstaða fyrir starfsfólk.
Núverandi matsalur er staðsettur í gamla skálanum og verður hann áfram á sínum stað meðan á framkvæmdum stendur. Þegar nýbyggingin verður tekin í notkun fær gamla rýmið síðan nýtt hlutverk.
Með framkvæmdunum verður aðgengi og aðstaða í Reykjadal bætt til muna. Nýi matsalurinn á jafnframt að skapa betri umgjörð um samveru og leik, sem skipa stóran sess í starfseminni og dvöl barnanna og ungmennanna í Reykjadal.
Stórt verkefni fram undan
Heildarkostnaður við uppbygginguna er áætlaður yfir 350 milljónir króna og því er enn nokkuð í land þrátt fyrir góðan árangur söfnunarinnar í sumar.
Fjármögnun verkefnisins byggist á byggingarsjóði félagsins auk styrkja og framlaga frá almenningi, fyrirtækjum og félagasamtökum. Áfram verður því þörf á öflugum stuðningi til að hægt verði að ljúka þessari umfangsmiklu uppbyggingu.
Yfir 60 ára starf í Mosfellsdal
Gló stuðningsfélag hefur rekið sumarbúðir í Reykjadal frá árinu 1963 og á starfsemin því djúpar rætur í Mosfellsdal. Þar er boðið upp á sumardvalir fyrir fötluð börn og ungmenni og helgardvalir yfir vetrartímann.
Einnig eru starfræktar Ævintýrabúðir fyrir börn með ADHD, einhverfu og andlegar áskoranir auk fjölbreyttrar samveru og jafningjastuðnings fyrir ungt fatlað fólk og fjölskyldur þeirra. Um 400 börn og ungmenni nýta sér úrræði á vegum Reykjadals á hverju ári.
Í Reykjadal er lögð áhersla á að börn og ungmenni fái að njóta sín á eigin forsendum og taki þátt í fjölbreyttum tómstundum. Vinátta, gleði og samvera eru þar í fyrirrúmi og með fyrirhugaðri uppbyggingu verður hægt að bæta enn frekar umgjörð þess starfs sem þar hefur verið unnið í meira en sex áratugi.






