Nýr myndlistarskóli tekur til starfa í Álafosskvos
Myndlistarskólinn ÁlafossLoft tekur til starfa í október í hinu sögufræga verksmiðjuhúsnæði Álafoss að Álafossvegi 23. Þar verður börnum og ungmennum í Mosfellsbæ boðið upp á fjölbreytt og skapandi myndlistarnám í einstöku umhverfi.
Með tilkomu ÁlafossLofts verður áfram tryggt framboð á myndlistarnámi fyrir börn og ungmenni í Mosfellsbæ. Ásdís Sigurþórsdóttir lét af rekstri Myndlistarskóla Mosfellsbæjar síðastliðið sumar eftir áratugalangt og farsælt starf og tekur nú við nýr kafli í myndlistarmenntun í bænum.
Mosfellsbær hefur gert samstarfssamning við ÁlafossLoft og er markmiðið að halda áfram að efla tækifæri barna og ungmenna til listnáms.
Ólöf Björg við stjórnvölinn
Stofnandi og stjórnandi skólans er Ólöf Björg Björnsdóttir, myndlistarmaður og kennari. Hún hefur áratuga reynslu af myndlistarkennslu fyrir börn, ungmenni og fullorðna og hefur undanfarin tíu ár starfað sem myndlistarkennari við Menntaskólann við Sund.
Ólöf er jafnframt starfandi myndlistarmaður og hefur haldið fjölmargar sýningar hér heima og erlendis. Hún býr og starfar í Álafosskvos og þekkir því vel til menningarlífs og umhverfis svæðisins.
Áhersla verður lögð á sköpunargleði, frumkvæði og einstaklingsmiðaða leiðsögn. Nemendur fá að kynnast fjölbreyttum aðferðum, meðal annars teikningu, málun, litafræði, myndbyggingu og þrívíðri sköpun.
Klassískar undirstöður myndlistar verða þannig fléttaðar saman við frjálsa og tilraunakennda vinnu þar sem hugmyndaflugið fær að njóta sín.
Álafosskvosin hluti af kennslunni
Nærumhverfi Álafosskvosar og Varmár verður einnig nýtt til útikennslu og skapandi verkefna þegar aðstæður leyfa. Í lok hvers námskeiðs verður haldin sýning á verkum nemenda þar sem fjölskyldum og gestum gefst tækifæri til að sjá afrakstur vinnunnar.
Kennsla hefst í vikunni 13.–16. október. Boðið verður upp á námskeið fyrir 12–15 ára á þriðjudögum og 8–12 ára á föstudögum.
Önninni lýkur í desember með samsýningu nemenda.
Skráning fer fram í gegnum Abler.
Með ÁlafossLofti hefst því nýr kafli í myndlistarnámi barna og ungmenna í Mosfellsbæ – á stað þar sem saga, menning og sköpun hafa lengi farið saman.




