Karlmaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa brotist inn í Reykjabúið í Mosfellsbæ og svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi, auk fleiri búa á Suðurlandi og Kjalarnesi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá þessu í tilkynningu um miðjan september og sagði málin upplýst.
Maðurinn var handtekinn og játaði brotin við yfirheyrslu en ekki kemur fram hvenær handtakan átti sér stað. Um var að ræða bæði innbrot og eignaspjöll í húsnæði búanna, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu. Þar segir að auk innbrotanna hjá Stjörnugrís og í Reykjabúið hafi innbrot í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi verið upplýst en ekki er tilgreint hversu mörg bú um ræðir.
Innbrotin áttu sér stað frá því í maí og fram í september. Fyrst var brotist inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí. Aðfaranótt mánudagsins 1. júní var síðan brotist inn í Reykjabúið í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar. Annað innbrot var svo framið í sama svínabú á Kjalarnesi í byrjun september.
Minkar gengu lausir um Mosfellsdal
Í tilkynningu lögreglu er einnig vikið að innbrotinu í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal í lok júlí, sem hafði þær afleiðingar að mikill fjöldi minka slapp út og gekk laus um Mosfellsdal og nágrenni. Það innbrot var framið nokkrum vikum eftir innbrotið í Reykjabúið og áður en brotist var inn hjá Stjörnugrís öðru sinni. Það mál er hins vegar enn til rannsóknar og segir lögregla að rannsókninni miði vel. Frekari upplýsingar um Dalsbúsmálið verða ekki veittar að svo stöddu.
Lögregla hefur ekki gefið upp hvort tengsl séu á milli innbrotsins í Dalsbú og þeirra mála sem nú teljast upplýst. Innbrotin í Reykjabúið og á Kjalarnesi eru komin á hreint en íbúar í Mosfellsdal bíða enn svara við því hver beri ábyrgð á því að minkarnir sluppu út í sumar. Mosfellingur mun fylgja málinu eftir. Vísir greindi fyrst frá.