INGA – RÁÐHERRA SEM SEGIR HLUTINA UPPHÁTT
Hlöðver Máni skrifar
Já, sko, Inga Sæland. Ég hef verið að fylgjast með henni lengi, eða allavega nógu lengi til að hafa myndað mér skoðun sem ég er tilbúinn að breyta strax og aðstæður kalla á það.
Inga stofnaði meira að segja sinn eigin stjórnmálaflokk. Það finnst mér ákveðin framkvæmdagleði. Flest okkar sitja heima og segja að það vanti stjórnmálaflokk sem hugsar nákvæmlega eins og við. Inga virðist hafa hugsað: „Allt í lagi þá, ég geri bara einn.“
Það sparar töluverðan tíma.
Núna er hún mennta- og barnamálaráðherra og virðist komin með þá róttæku hugmynd að börn eigi að læra í skólanum. Hún hefur talað um lestur, stærðfræði, raun- og tæknigreinar, betri námsgögn og breytingar á kerfinu.
Ég er mjög hlynntur þessu.
Ég hafði alltaf talið að skólinn væri einmitt hugsaður fyrir svona hluti en greinilega þurfti ráðherra til að staðfesta það.
Það sem mér finnst merkilegt við Ingu er að maður þarf sjaldan sérstakan ráðgjafa til að þýða hvað hún er að segja. Hún getur auðvitað talað eins og stjórnmálamaður þegar þess þarf en svo kemur skyndilega setning sem hljómar eins og hún hafi verið sögð yfir eldhúsborði og allir vakna.
Það er ákveðin list.
Stjórnmálamenn eru annars oft þannig að þeir geta talað í sjö mínútur og eftir á er maður fullkomlega viss um að orð hafi verið notuð en óviss um í hvaða tilgangi.
Inga getur verið töluvert skýrari.
Stundum jafnvel aðeins of skýr, sem ég kann vel að meta svo lengi sem ég er sammála henni.
Ef ég er ósammála henni finnst mér aftur á móti mikilvægt að stjórnmálamenn vandi orð sín.
Maður verður að hafa einhver prinsipp.
Hún hefur líka talað opinskátt um að menntakerfið þurfi að gera betur og að það sé hægt að bera virðingu fyrir kennurum án þess að láta eins og allt sé fullkomið.
Það finnst mér ágæt nálgun.
Við Íslendingar höfum nefnilega stundum þá sérstöku aðferð að sýna kerfum virðingu með því að þora ekki að breyta þeim.
Síðan stofnum við starfshóp um breytingarnar.
Og starfshóp um starfshópinn.
Þarna held ég að Inga eigi eftir að hafa nóg að gera.
Sem er gott.
Nema það sé of mikið.
Þá þarf hún auðvitað að einfalda það.
En ég elska samt Mosó mest.




