Frá stórborgarlífi í London í notalegheitin í Mosó
Sigurveig Anna Gunnarsdóttir, eða Annsy eins og hún er jafnan kölluð, er fædd og uppalin á Sauðárkróki en hefur komið víða við síðan hún flutti að heiman. Hún hefur búið í Danmörku, Frakklandi og síðast í London þar sem hún var í sjö ár og byggði upp feril sinn sem atvinnuljósmyndari. Nú hefur hún sest að í Mosfellsbæ ásamt eiginmanni sínum og fjögurra mánaða gamalli dóttur þeirra og segir fjölskylduna kunna einstaklega vel við sig í nýjum heimkynnum.
Annsy er nýgift, mikil fjölskyldumanneskja og hefur, auk ljósmyndunarinnar, mikinn áhuga á mat og víni. Þegar tími gefst til les hún bækur og grípur gjarnan í hannyrðir og eru útsaumur og prjón í sérstöku uppáhaldi.
Annsy varð til í London
Nafnið Annsy á sér skemmtilega sögu en það varð í raun til þegar Sigurveig flutti til London í ljósmyndanám. Bekkjarsystkini, kennarar og aðrir sem ekki töluðu íslensku áttu í mesta basli með að bera fram nafnið Sigurveig og því þurfti að finna einfaldari lausn.
Hún blandaði saman millinafninu Anna og fyrstu tveimur stöfunum í nafninu Sigurveig og úr varð Annsí. Henni fannst þó eitthvað vanta og skipti því í-inu út fyrir y. Þar með var Annsy fædd. Nú, átta árum síðar, segir hún álíka marga kalla sig Annsy og Sigurveigu.
Frá Sauðárkróki til stórborgarinnar
Ævintýraþráin hefur lengi verið sterk hjá Annsy. Eftir framhaldsskóla lá leiðin í Hússtjórnarskólann í Reykjavík og þaðan í lítinn bæ á Jótlandi þar sem hún hélt áfram námi í hannyrðum. Síðar flutti hún aftur til Reykjavíkur og keypti þar sína fyrstu myndavél.
Áhuginn á ljósmyndun hafði þó kviknað löngu áður. Faðir hennar hafði mikinn áhuga á græjum og myndavélin hans rataði reglulega inn í herbergi dótturinnar. Sem barn myndaði hún allt sem vakti áhuga hennar, meðal annars fallegar rósir ömmu sinnar og jafnvel óhreinan grautarpott í vaskinum.
„Ég á margar góðar minningar með myndavél í höndunum. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á ljósmyndun en það var ekki fyrr en ég keypti mína fyrstu myndavél sem ég trúði að ég gæti unnið við þetta.“
Leiðin lá síðar til Frakklands með þáverandi kærasta hennar og núverandi eiginmanni. Hann lagði stund á vínfræði í Bordeaux á meðan Annsy lærði frönsku og vann með ljósmyndara. Þegar kom að því að velja sér ljósmyndanám varð London fyrir valinu og þar tók við nýr kafli.
„Mig langar að búa hér“
Eftir sex ár í London fóru hjónin að horfa heim til Íslands. Þau vildu vera á höfuðborgarsvæðinu en söknuðu um leið minna samfélags og nálægðar við fjölskyldu og vini. Mosfellsbær kom fljótt til greina enda áttu þau bæði vini og fjölskyldu í bænum.
Eitt sumarið sat Annsy í sveitinni og fletti í gegnum fasteignavefi. Hún sendi eiginmanninum hlekki á nokkrar eignir og þegar sú þriðja birtist fylgdi einföld setning með:
„Mig langar að búa hér.“
Svarið lét ekki á sér standa: „Mig líka.“
Þau skoðuðu íbúðina, festu kaup á henni og leigðu hana út í eitt ár á meðan þau kláruðu London-kaflann. Nú er tæpt ár síðan þau fengu íbúðina afhenta og frá þeim tíma hafa staðið yfir töluverðar framkvæmdir á nýja heimilinu.
Fjöllin grípa auga ljósmyndarans
Það eru mikil viðbrigði að skipta London út fyrir Mosfellsbæ en Annsy segir breytinguna hafa verið kærkomna. Hún saknar vissulega ákveðinna þæginda stórborgarinnar, eins og að geta fengið nánast hvað sem er sent heim með litlum fyrirvara. Þyngra vegur þó að vera komin nær fjölskyldu og vinum.
Fyrstu kynni hennar af Mosfellsbæ hafa verið góð og náttúran hefur ekki farið fram hjá ljósmyndaranum.
„Ég get ekki hætt að horfa á öll fjöllin. Mikið sem ég saknaði þess að sjá fallegu íslensku fjöllin þegar ég bjó í London.“
Gönguferðir með litlu dótturina í vagninum eru jafnframt orðnar eins konar staðaleit fyrir framtíðarverkefni. Annsy segist sífellt koma auga á nýja staði sem gætu hentað fyrir fjölskyldu-, fermingar- og útskriftarmyndir og hún hlakkar til að láta íslenska náttúru fá enn stærra hlutverk í tísku- og fegurðarljósmyndum sínum.
Myndir á lestarstöðvum í London
Ferillinn í London var bæði spennandi og krefjandi. Samkeppnin var mikil og Annsy þurfti að hafa fyrir því að skapa sér nafn meðal fjölda hæfileikaríkra ljósmyndara.
Ein eftirminnilegasta stundin kom þegar myndir sem hún tók fyrir ítalskt vörumerki birtust sem auglýsingar á meira en 45 neðanjarðarlestarstöðvum í London.
Annað verkefni sem stendur henni nærri var myndasería af 25 konum á aldrinum 18 til 82 ára. Konurnar voru allar ómálaðar og myndirnar óunnar en markmiðið var að sýna að fegurð væri ekki bundin við ákveðin föt, förðun eða aldur. Myndirnar voru síðar birtar í Harper’s Bazaar Arabia.
Annsy hefur einnig myndað þekkt fólk, þar á meðal Tommy Fury fyrir fatamerki í London. Það fyndna við þá myndatöku var að Annsy hafði ekki hugmynd um hver hann var fyrr en eftir á.
Glundroði, list og upplifun
Þótt London hafi mótað Annsy bæði sem ljósmyndara og manneskju virðist hún fljótt vera farin að tileinka sér Mosó-lífsstílinn. Fullkominn frídagur byrjar nú á sólskini og sundferð. Síðan tekur við stopp í bakaríinu eða ís í Huppu áður en deginum lýkur með góðum mat og samveru með hennar nánustu.
Hún segist þó vera að feta sín fyrstu skref sem Mosfellingur. Sauðárkrókurinn eigi enn stóran stað í hjartanu en hún sé farin að átta sig á því hvað þurfi til að vinna sér inn Mosfellingatitilinn: hvetja Aftureldingu, mæta í sund og ganga á Mosfell og Úlfarsfell.
Þegar hún er beðin um að lýsa gamla og nýja heimilinu með þremur orðum kemur munurinn á stöðunum kannski best í ljós.
London er að hennar mati glundroði, list og upplifun.
Mosfellsbær er hins vegar notalegheit, samvera og fjölskylda.






