Bæjarráð ákvað á fundi sínum þann 29. október að búsetuúrræðið Fagrahlíð yrði lagt
niður sem sjálfstæð rekstrareining. Íbúum þess hefur verið boðin þjónusta í öðrum
búsetuúrræðum Mosfellsbæjar sem rekin eru á Skálatúnssvæðinu.
Fagrahlíð er minnsta búsetuúrræðið af þeim fimm sem rekin eru á svæðinu og þar eru nú aðeins þrír íbúar. Nýlega hafa losnað þrjú búseturými á svæðinu og skapar það
svigrúm til að skipuleggja þjónustu við íbúa Fögruhlíðar innan annarra úrræða.
Ákvörðunin byggist á þessum aðstæðum, smæð Fögruhlíðar og fyrirliggjandi
samkomulagi um framtíðarnýtingu svæðisins.
Markmiðið með þessum breytingum er að tryggja íbúum áfram góða þjónustu, nýta
húsnæði og mannafla vel og stuðla að sjálfbærum rekstri. Breytingarnar hafa í för með sér að starfsfólki Fögruhlíðar hefur verið sagt upp störfum, alls 12 starfsmönnum í 8,4 stöðugildum.
Framtíðaruppbygging Farsældartúns
Samkvæmt samkomulagi Mosfellsbæjar, Farsældartúns og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
frá árinu 2023 mun Skálatún fá nýtt hlutverk til framtíðar í þágu barna og fjölskyldna
þeirra. Í samræmi við samkomulagið mun Mosfellsbær hafa afnot af húsnæði
Skálatúns á meðan þörf krefur vegna núverandi íbúa og áfram verður íbúum Skálatúns
tryggð örugg búseta.