Mosfellingur
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail

Í túninu heima 2026 – Íbúar ánægðir

3. október, 2026

Íbúar ánægðir með bæjarhátíðina Í túninu heima

Gleði í bænum, góð samvera og fjölbreytt dagskrá er það sem stendur upp úr í niðurstöðum könnunar Mosfellsbæjar um bæjarhátíðina Í túninu heima 2026.

Um 80% svarenda telja fjölbreytni og gæði dagskrárinnar hafa verið góð og margir hrósa fjölskylduvænni hátíð þar sem nóg var við að vera. Alls bárust 489 svör í opinni netkönnun að hátíðinni lokinni.

Samkvæmt niðurstöðunum sóttu flestir Ullarpartýið í Álafosskvos eða um 58%. Götugrillin og stórtónleikarnir á Hlégarðstúni fylgdu þar á eftir, hvort tveggja með um 47% þátttöku meðal svarenda. Brekkusöngurinn fær mikið hrós og margir nefna sérstaklega góða frammistöðu nýs brekkusvöngvara Ketils Ágústssonar við stjórn söngsins.

Samvera með fjölskyldu, vinum og nágrönnum skipar stóran sess í svörunum. Ánægja er með götugrillin og stuðning bæjarins með pylsum og trúbadorum, auk þess sem garðtónleikar og heimboð íbúa settu skemmtilegan svip á hátíðina. Auk þess fengu skreytingar bæjarins og íbúanna, gott skipulag og veðurblíðan góðar umsagnir.

Ábendingar fyrir næstu hátíð

Könnunin gaf einnig gagnlegar vísbendingar um það sem betur má fara. Má þar nefna skiptar skoðanir um tímasetningu stórtónleikanna. Margir hrósa sunnudeginum sem fjölskylduvænum valkosti sem gefi götugrillunum meira svigrúm, en aðrir vilja fá tónleikana aftur á laugardagskvöld og á Miðbæjartorgið.

Þá er kallað eftir meiri dagskrá fyrir unglinga og ungt fólk, sérstaklega 16–20 ára, og nokkrir lýsa vonbrigðum með að tívolíið vantaði. Það kom ekki ljós fyrr en á föstudeginum að tívolíið gat ekki verið með í ár sem skiljanlega olli vonbrigðum. Könnunin sýnir meiri ánægju í ár en í fyrra meðal ungmenna,  33% þeirra voru ánægð með gæði og fjölbreytni dagskrár í fyrra en 49% í ár. Boðið var uppá nýjan ungmennaviðburð í Álafosskvos í ár en niðurstöðurnar gefa til kynna að það þurfi að gera betur fyrir þennan aldurshóp.

Einnig komu fram óskir um rýmri viðburðasvæði, betra aðgengi og ódýrari afþreyingu fyrir börn.

Heildarniðurstöður könnunarinnar verða teknar til skoðunar og hafðar til hliðsjónar við skipulag næstu bæjarhátíðar.

 

https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/10/300826-254-scaled.jpg 1707 2560 mosfellingur https://mosfellingur.is/wp-content/uploads/2026/04/mosfellingur-logo.jpg mosfellingur2026-10-03 16:24:212026-10-03 17:03:50Í túninu heima 2026 – Íbúar ánægðir

Bæjarblaðið Mosfellingur

Mosfellingur er frítt, óháð bæjarblað sem miðlar jákvæðum fréttum og sögum úr Mosfellsbæ. Blaðið kemur út mánaðarlega og er dreift á öll heimili og flest fyrirtæki í bænum. Á vefnum birtum við valdar fréttir og greinar úr blaðinu.
Ad
Ad
Mosfellingur ehf - Gerplustræti 4 - kt. 470426-3490 - VSK-nr. 161122 - [email protected] - Enfold WordPress Theme by Kriesi
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
  • Link to Mail
  • Fréttir
  • Aðsendar greinar
  • Um Mosfelling
  • Auglýstu í Mosfellingi
Link to: RAFMAGNIÐ FÓR – EN MOSÓ LIFÐI AF Link to: RAFMAGNIÐ FÓR – EN MOSÓ LIFÐI AF RAFMAGNIÐ FÓR – EN MOSÓ LIFÐI AF Link to: Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2026 – Jakob Smári Magnússon Link to: Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2026 – Jakob Smári Magnússon Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2026 – Jakob Smári Magnússon
Scroll to top Scroll to top Scroll to top