Gert ráð fyrir rekstrarafgangi 2022
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2022 ber merki aukinna efnahagslegra umsvifa eftir það högg sem heimsfaraldur kórónuveirunnar er og þeirrar viðspyrnu sem Mosfellsbær hefur náð, segir í tilkynningu frá Mosfellsbæ.
Á næsta ári verður unnið að hönnun og framkvæmd nýs leikskóla í Helgafellshverfi, byggingu nýs íþróttahúss í Helgafellsskóla og nýrrar þjónustubyggingar við íþróttamiðstöðina að Varmá.
Þá verður að nýju hægt að halda viðburði í endurnýjuðum Hlégarði en húsið verður tilbúið í byrjun nýs árs. Árið 2022 verður fyrsta heila starfsár Úlfsins frístundaklúbbs fyrir fötluð börn og ungmenni, en áætlað er að starfsemin eigi sér stað allt árið um kring með heilsdagsplássum þegar um skólafrí er að ræða. Nú er þessi mikilvæga þjónusta komin heim en áður var þjónustan veitt utan sveitarfélagsins með tilheyrandi akstri.
Lækkun leikskólagjalda um 5%
Samkomutakmarkanir síðustu mánaða hafa skapað aðstæður hjá sveitarfélögum til þess að stuðla að aukinni notkun rafrænna leiða í þjónustu og Mosfellsbær mun nýta þau tækifæri í samvinnu við íbúa. Í heild verður framkvæmt fyrir um þrjá milljarða til að byggja upp innviði og efla samfélagið. Íbúar eru nú rúmlega 13.000 og mun fjölga um allt að 3,5% á næsta ári.
Í upphafi faraldursins var mörkuð sú stefna að tryggja óbreytta eða aukna þjónustu og byggja upp innviði án þess að ganga of langt í lántöku. Því er áformað að bæjarsjóður verði rekinn með 171 m.kr. afgangi á næsta ári og á sama tíma lækka bæði leikskólagjöld og álagningarprósentur fasteignagjalda. Lækkun leikskólagjalda nemur um 5% á árinu 2022.
Nú stendur yfir vinna við endurskoðun á skólastefnu Mosfellsbæjar sem við munum sjá í byrjun næsta árs. Þá er unnið að því að endurskoða aðalskipulag Mosfellsbæjar og mun þeirri vinnu ljúka fyrir lok yfirstandandi kjörtímabils. Loks er unnið að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög. Loks er lýðheilsu- og forvarnastefna í samþykktarferli.
Markmiðið var að ná viðspyrnu
„Markmið okkar í Mosfellsbæ við upphaf heimsfaraldursins var að ná viðspyrnu og verja þjónustu við íbúa,“ segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri.
„Fjárhagsáætlunin ber þess skýr merki að þeim markmiðum er náð sem endurspeglar sterka stöðu sveitarfélagsins til að mæta tímabundnum fjárhagslegum áföllum.
Í fjárhagsáætlun ársins 2022 er gert ráð fyrir um 171 m.kr. afgangi af rekstri sveitarfélagsins. Þessi árangur næst ekki fyrir tilviljun heldur vegna þess að starfsfólki undir forystu bæjarstjórnar hefur tekist að laga rekstur sveitarfélagsins að breyttu fjárhagslegu umhverfi án þess að skerða þjónustu og jafnframt hefur verið bætt í þjónustuna í nokkrum tilfellum.
Vegna þessa árangurs getum við farið í frekari uppbyggingu m.a. á sviði fræðslumála og íþróttamála eins og fjárhagsáætlunin ber með sér þegar kemur að hönnun og byggingu nýs leikskóla í Helgafellshverfi, byggingu íþróttahúss við Helgafellsskóla og nýrrar þjónustubyggingar við íþróttamiðstöðina að Varmá,“ segir Haraldur.
HELSTU ÁHERSLUR:
- Að afgangur verði af rekstri bæjarins þrátt fyrir að tekjur hafi lækkað vegna kórónuveirufaraldursins.
- Að álagningarhlutföll fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði og atvinnurekstur lækki.
- Að nýjum lóðum í Helgafellshverfi og á miðbæjarsvæði verði úthlutað fyrir fjölbreyttar íbúðargerðir.
- Að gjaldskrár breytist í samræmi við breytingar á verðlagi og hækki því ekki að raungildi. Leikskólagjöld lækki um 5%.
- Að hafin verði bygging nýs leikskóla í Helgafellshverfi og íþróttahúss við Helgafellsskóla.
- Að hafin verði bygging þjónustubyggingar við íþróttamiðstöðina að Varmá.
- Að dagvistunargjöld allra barna frá 12 mánaða aldri verði þau sömu óháð vistunarformi.
- Að skuldir sem hlutfall af tekjum muni lækka og skuldaviðmiðið verður 100,8% af tekjum í árslok.
- Að félagslegum íbúðum fjölgi.
- Að hafnar verði framkvæmdir við stækkun hjúkrunarheimilisins Hamra.