„Ég hef aldrei verið eins glöð á ævinni“
Hin 14 ára Rebecca Lív Biraghi hefur heldur betur látið að sér kveða í leiklistinni þrátt fyrir ungan aldur. Hún fer nú með stórt hlutverk í sýningunni Svikasögur á Stóra sviði Borgarleikhússins þar sem hún leikur Nönnu yngri. Leiðin þangað hófst fyrir tilviljun þegar frænka hennar rak augun í auglýsingu um barnaleikara. Síðan þá hefur Rebecca verið heilluð af leikhúsinu og stefnir nú á að gera leiklistina að framtíðarstarfi.
Rebecca Lív Biraghi er 14 ára Mosfellingur og nemandi í Helgafellsskóla. Hún lýsir sjálfri sér sem hressri íþróttastelpu sem dýrkar leiklist. Hún hefur þegar öðlast töluverða reynslu á sviði og fyrir framan myndavélina en áhuginn á leiklist kviknaði þegar hún var aðeins 9 ára gömul.
„Frænka mín sá auglýst eftir krökkum í leikrit og ég ákvað að prófa. Ég var strax mjög forvitin og spennt að sjá hvort þetta væri eitthvað fyrir mig,“ segir Rebecca.
Á þessum tíma æfði hún bæði hópfimleika og fótbolta en leiklistin náði fljótt yfirhöndinni. Hún komst í barnahóp sýningarinnar Langelstur að eilífu í Gaflaraleikhúsinu og þar kviknaði neistinn fyrir alvöru.
„Ég fann það strax, aðeins 9 ára, hvað mér fannst þetta skemmtilegt. Mér leiddist aldrei að sýna sömu leiksýninguna aftur og aftur, viku eftir viku.“
Sex prufur og draumahlutverkið í höfn
Rebecca er nú á þriðja ári í Leiklistarskóla Borgarleikhússins og þegar leitað var að ungri leikkonu í hlutverk Nönnu í Svikasögum fékk hún tækifæri til að mæta í prufur. Samkeppnin var hörð og ferlið bæði langt og krefjandi.
„Við vorum margar stelpur á svipuðum aldri, allar með leikreynslu. Ég þurfti að leika, syngja og læra mikinn texta utan að. Ég held að prufurnar hafi verið sex í heildina, sem er óvenju mikið,“ segir Rebecca.
Eftir hverja prufu tók við bið eftir svari og Rebecca viðurkennir að hún hafi í hvert skipti orðið jafn hissa þegar mamma hennar tilkynnti henni að hún væri komin áfram.
„Hinar stelpurnar voru svo frábærar að ég bjóst einhvern veginn aldrei við því að komast áfram.“
En svo kom símtalið sem breytti öllu.
„Ég man svo vel eftir deginum sem ég fékk hlutverkið. Ég hef aldrei verið eins glöð á ævinni, held ég. Ég trúði þessu eiginlega ekki,“ segir Rebecca.
Stórar tilfinningar á stóra sviðinu
Í Svikasögum leikur Rebecca hina 13 ára Nönnu, tilfinningaríka unglingsstúlku sem á í sérstöku sambandi við föður sinn.
„Nanna er algjör pabbastelpa. Hún dáist aðeins of mikið að pabba sínum og finnst æðislegt að spila með honum á píanó og syngja.“
En líf Nönnu er langt frá því að vera einfalt. Hún glímir við erfiðar aðstæður heima fyrir og miklar tilfinningar sem Rebecca þarf að koma til skila á sviðinu.
„Það sem er skemmtilegast við að leika Nönnu er eiginlega líka það erfiðasta. Hún er karakter með mjög stórar og miklar tilfinningar.“
Rebecca segir ómetanlegt að fá að vinna með reyndum leikurum Borgarleikhússins. Í fyrstu hafi hún verið svolítið feimin við að vinna með fólki sem hún hafði lengi litið upp til en sú tilfinning hafi fljótt horfið.
„Allir eru svo vingjarnlegir og þetta er ótrúlega peppandi hópur. Þau hafa hjálpað mér mikið, sérstaklega við að ná fram öllum þessum tilfinningum sem ég þarf að sýna á sviðinu.“
Að standa á Stóra sviði Borgarleikhússins fyrir framan fullan sal segir hún vera draumi líkast.
„Í byrjun var ég mjög stressuð en eftir frumsýninguna breyttist stressið í spennu og gleði. Nú bíð ég eiginlega allan daginn eftir því að komast upp í leikhús þegar ég á sýningu. Þegar ég er komin í búninginn og búið er að gera hárið er stressið farið og ég er bara tilbúin að byrja.“
Lærði öll ljóðin utan að
Þótt Rebecca virðist eiga auðvelt með að koma fram fyrir stórum hópi fólks segir hún að mikil vinna og undirbúningur liggi þar að baki.
Árið 2025 vann hún Stóru upplestrarkeppnina í Mosfellsbæ en sá árangur kom ekki af sjálfu sér.
„Ég hef aldrei sóst sérstaklega eftir athygli og mamma er enn hissa á því að mér finnist ekkert mál að standa fyrir framan 500 manns. En þegar ég er að leika einhvern annan er ég ekki Rebecca heldur karakterinn og þá finnst mér þetta ekkert mál.“
Rebecca segir fólk stundum halda að hún þurfi lítið að hafa fyrir hlutunum en það sé fjarri lagi.
„Ég rugla mikið saman stöfum þegar ég les og þarf þess vegna alltaf að vera sérstaklega vel undirbúin. Fyrir upplestrarkeppnina lærði ég til dæmis alla textana og ljóðin utan að. Ég legg mig alla fram enda með mikið keppnisskap.“
Skólinn, fimleikarnir og leikhúsið
Það getur verið heilmikið púsluspil að vera 14 ára grunnskólanemi og sinna um leið stóru hlutverki í atvinnuleikhúsi.
Rebecca segir kennara sína og skólastjórnendur í Helgafellsskóla hafa sýnt sér mikinn skilning á meðan æfingar fyrir Svikasögur stóðu yfir.
„Æfingaferlið hófst í lok apríl og ég fór ekki aftur í skólann fyrr en eftir frumsýninguna í lok september. Ég er auðvitað aðeins á eftir í nokkrum fögum en verð fljót að vinna það upp.“
Leiklistin hefur að sama skapi haft áhrif á aðrar tómstundir. Hún þurfti á sínum tíma að hætta í fótbolta og hefur lítið komist á fimleikaæfingar meðan mest hefur verið að gera í leikhúsinu.
„Ég hafði líka minni tíma fyrir vinina á meðan æfingaferlið stóð yfir en nú, þegar sýningarnar eru byrjaðar, eru flestir dagar orðnir nokkuð venjulegir.“
Rebecca hefur einnig komið fram í Stundinni okkar og Krakkafréttum og segir sjónvarpsleik og sviðsleik vera tvo mjög ólíka heima.
„Í sjónvarpi fær maður fleiri tökur til að ná atriðinu rétt en í leikhúsinu má ekkert klikka. Þar fær maður hins vegar viðbrögðin beint frá áhorfendum og það gefur manni svo mikið.“
Fullkominn dagur með sushi og leikhúsi
Þegar Rebecca er ekki í skólanum eða á sviðinu nýtur hún þess að ferðast með fjölskyldunni og skoða nýja staði. Leikhúsið er þó sjaldan langt undan, jafnvel þegar hún á frí.
„Fullkominn frídagur væri að sofa út, fá sér sushi og fara svo í leikhús,“ segir hún og hlær.
Hún segist geta farið aftur og aftur á sömu leiksýningarnar án þess að fá leið á þeim. Leikhúsið sé einfaldlega það skemmtilegasta sem hún viti.
Þótt Rebecca hafi þegar fengið tækifæri sem marga unga leikara dreymir um er hún ekkert farin að gera stórkostleg framtíðarplön. Hún nýtur þess fyrst og fremst að vera þar sem hún er í dag.
„Mig dreymir um að verða leikkona en það verður bara að koma í ljós hvað gerist í framtíðinni.“
Það er þó alveg ljóst að litla stelpan sem fór fyrir tilviljun í leiklistarprufu 9 ára gömul hefur fundið eitthvað sem hún elskar að gera. Og miðað við gleðina sem hún lýsir þegar hún stígur á svið Borgarleikhússins er ekki ólíklegt að Mosfellingar eigi eftir að sjá mun meira af Rebeccu Lív Biraghi á komandi árum.








