Bæjarlistamenn Mosfellsbæjar 2022
Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar var útnefndur við hátíðlega athöfn á bæjarhátíðinni Í túninu heima.
Menningar- og nýsköpunarnefnd Mosfellsbæjar sér um val bæjarlistamanns ár hvert og veitti Hrafnhildur Gísladóttir formaður nefndarinnar þeim Agnesi Wild, Sigrúnu og Evu Björgu verðlaunagrip eftir listakonuna Ingu Elínu ásamt viðurkenningarfé sem fylgir nafnbótinni.
Áhersla á tengingu við Mosfellsbæ
Leikhópinn Miðnætti stofnuðu þær Agnes Wild leikkona og leikstjóri, Sigrún Harðardóttir tónlistarkona og Eva Björg Harðardóttir leikmynda- og búningahönnuður.
Allar ólust þær upp í Mosfellsbæ og hafa verið atkvæðamiklar í mosfellsku menningarlífi í gegnum tíðina. Stofnmeðlimir hópsins eiga grunn í Leikfélagi Mosfellssveitar, skólahljómsveitinni, tónlistarskólanum og skólakórunum. Í listrænu starfi leggur hópurinn áherslu á tengingu við Mosfellsbæ.
Áhersla á vandað menningarefni
Leikhópurinn hefur einbeitt sér að sviðslistum fyrir börn og var tilnefndur til Grímuverðlaunanna 2017 í flokkunum „Barnasýning ársins“ og „Dans og sviðshreyfingar ársins“ fyrir sýninguna Á eigin fótum. Leiðarljós í starfsemi hópsins er áhersla á vandað menningarefni fyrir börn og ungmenni.
Álfabörnin Þorri og Þura eru meðal sköpunarverka hópsins en einnig má nefna brúðusýninguna Geim-mér-ei í Þjóðleikhúsinu og Tjaldið í Borgarleikhúsinu. Báðar þessar sýningar eru ætlaðar yngstu leikhúsgestunum.