Veitur hafa tekið í notkun nýja rafstrengi sem auka afhendingaröryggi rafmagns í Mosfellsbæ til muna. Strengirnir liggja neðanjarðar á milli aðveitustöðvanna við Dælustöðvarveg í Mosfellsbæ og Korpu og koma í stað eldri loftlínu.
Framkvæmdin er liður í markvissri vinnu Veitna við að leggja niður loftlínur og koma jarðstrengjum fyrir í þeirra stað. Nýju strengirnir hafa rúmlega þrefalda flutningsgetu á við gömlu loftlínuna auk þess sem þeir eru betur varðir fyrir veðri.
Mætir framtíðarvexti bæjarins
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Mosfellsbæ á þeim 50 árum sem liðin eru frá því að gamla loftlínan var lögð. Með tilkomu nýju strengjanna er betur komið til móts við vaxandi raforkuþörf bæjarins og skapaðar forsendur fyrir áframhaldandi þróun næstu áratugi án þess að auka þurfi flutningsgetuna enn frekar.