Áberandi gluggamerkingar nikótínverslunarinnar Nikulásar í miðbæ Mosfellsbæjar hafa verið fjarlægðar eftir að Mosfellsbær gerði athugasemdir við merkingarnar og krafðist úrbóta.
Auglýsingarnar höfðu vakið athygli og nokkra óánægju meðal bæjarbúa, meðal annars vegna þess hversu áberandi þær voru og vegna nálægðar verslunarinnar við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ.
Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri staðfesti við mbl.is að merkingarnar hefðu verið fjarlægðar og sagðist ánægður með skjót viðbrögð við athugasemdum bæjarins.
„Það er fyrst og fremst ánægjulegt þegar brugðist er við athugasemdum. Það kom mér skemmtilega á óvart að taka eftir þessu í morgun,“ sagði Hilmar.
Merkingarnar ekki í samræmi við reglur
Að sögn bæjarstjóra fengu eigendur húsnæðisins kröfu frá Mosfellsbæ um úrbætur þar sem merkingarnar væru ekki í samræmi við reglur. Skilti af þessu tagi séu byggingarleyfisskyld og því þurfi að sækja um leyfi áður en þau eru sett upp.
Eigendum voru gefnir nokkrir dagar til að finna lausn á málinu og niðurstaðan varð sú að merkingarnar voru fjarlægðar af gluggum verslunarinnar.
Hilmar hrósaði viðbrögðunum og sagði eigendur hafa brugðist hratt og vel við.
Málið hafði áður verið til umfjöllunar eftir að bæjarbúar komu á framfæri athugasemdum við ásýnd verslunarinnar og markaðssetninguna. Hilmar hafði þá sagt mikilvægt að mikilvægt að fara varlega í markaðssetningu sem gæti höfðað til ungs fólks.
Hann þakkaði jafnframt íbúum fyrir ábendingarnar og sagði jákvætt að Mosfellingum væri annt um bæði ásýnd bæjarins og heilsu íbúanna.