Pappírssalan ehf. var stofnuð í byrjun árs 2024 af þeim Hjalta Þór Halldórssyni og Júlíusi Finnbogasyni. Þrátt fyrir nafnið er pappír aðeins hluti af starfseminni því fyrirtækið býður í dag upp á fjölbreyttar rekstrarvörur og heildarlausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Hjalti hefur starfað í greininni í rúm 20 ár og býr yfir mikilli reynslu af vörum, birgjum og markaðnum. Hugmyndin að fyrirtækinu var upphaflega hans og fékk hann Júlíus með sér í verkefnið.
Í upphafi var áherslan aðallega á pappírsvörur en fljótlega kölluðu viðskiptavinir eftir fjölbreyttara úrvali. Í dag selur Pappírssalan meðal annars hreinlætisvörur, ræstiefni, umbúðir, hótelvörur, búnað fyrir atvinnueldhús, gólfþvottavélar og ryksugur auk lausna fyrir þvottahús og uppþvottakerfi.
„Við viljum að þegar fyrirtæki vantar eitthvað fyrir reksturinn hugsi þau: Ætli Pappírssalan geti ekki reddað þessu?“
Leita alltaf lausna
Hjalti og Júlíus segja persónulega þjónustu og sveigjanleika vera helstu sérkenni fyrirtækisins. Ef vara er ekki til á lager sé markmiðið ekki að segja einfaldlega nei heldur að leitast við að finna lausn.
Ráðgjöf er einnig stór hluti starfseminnar. Fyrirtækið setur meðal annars upp sjálfvirk skömmtunar- og blöndunarkerfi og ráðleggur viðskiptavinum hvernig hægt sé að draga úr sóun og rekstrarkostnaði.
„Við viljum vera samstarfsaðili viðskiptavinarins, ekki bara birgir.“
Vöxtur í Mosó
Pappírssalan er til húsa að Völuteigi 17 og segja eigendurnir Mosfellsbæ góðan stað til að byggja upp fyrirtæki. Þeir vilja jafnframt sjá fyrirtæki í bænum versla meira hvert við annað og nýta þá þjónustu sem þegar er til staðar í heimabyggð.
Fram undan er áframhaldandi vöxtur. Stefnt er að því að opna litla verslun þar sem bæði fyrirtæki og einstaklingar geta komið við, keypt rekstrarvörur og fengið ráðgjöf.
Markmiðið er skýrt: að Pappírssalan verði meðal fyrstu fyrirtækja sem fólk hugsar til þegar eitthvað vantar í daglegan rekstur.
FYRIRTÆKIÐ Í TÖLUM
Stofnað: 2024
Stofnendur: Hjalti Þór Halldórsson og Júlíus Finnbogason
Starfsmenn: 3 (5–6 á háannatíma ferðaþjónustunnar)
Staðsetning: Völuteigur 17, Mosfellsbæ
Helsta þjónusta: Rekstrarvörur, hreinlætislausnir, pappírsvörur, umbúðir, ræstiefni og búnaður
Helstu viðskiptavinir: Hótel, veitingastaðir, skólar, sveitarfélög, þvottahús og önnur fyrirtæki
Næstu markmið: Opna litla verslun, fjölga viðskiptavinum og efla sérhæfðar heildarlausnir
HRAÐASPURNINGAR
Pappír eða plast?
Hvort tveggja – og ýmislegt fleira.
Hvað einkennir Pappírssöluna best?
Persónuleg þjónusta og að finna lausnir.
Algengasti misskilningurinn?
Að við seljum bara pappír.
Hvað viljið þið heyra viðskiptavin segja?
„Hringjum í Pappírssöluna, þeir redda þessu.“
Mosó í einu orði?
Tækifæri.
Hvar verður Pappírssalan eftir fimm ár?
Enn stærri, með breiðara vöruúrval og fleiri ánægða viðskiptavini.
