Sunnudagur, 22. nóvember 2026
Forsíða
Atvinnulíf

Atvinnulífið í Mosó: „Við reddum öllu“

Atvinnulífið í Mosó: „Við reddum öllu“
2 mín. lestur
Facebook

Vélsmiðjan Sveinn hefur staðið vaktina í Mosó í 33 ár – með persónulega þjónustu, lítið flækjustig og lausnir fyrir stór og smá verkefni.

Feðgarnir lögðu grunninn

Vélsmiðjan Sveinn var stofnuð 31. ágúst 1993 af feðgunum Haraldi V. Haraldssyni og Haraldi Lúðvíkssyni. Grunnurinn hafði þó verið lagður fyrr þegar þeir feðgar unnu saman að ýmsum verkefnum í bílskúr í Álfheimum samhliða öðrum störfum. Haraldur yngri var þá vélstjóri á sjó en faðir hans verksmiðjustjóri hjá Alpan á Eyrarbakka.

„Við bökkuðum hvor annan upp í að gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Haraldur.

Mosó varð fyrir valinu

Leitað var lengi að hentugu húsnæði áður en Mosfellsbær varð fyrir valinu haustið 1993. Minni samkeppni og góð staðsetning réðu miklu og starfsemin hefur síðan verið í Flugumýri 6. Haraldur og eiginkona hans fluttu sjálf í Mosfellsbæ árið 1997.

Í dag segir Haraldur staðsetninguna sífellt betri. Fyrirtækið þjónustar viðskiptavini víða um höfuðborgarsvæðið og upp á Grundartanga.

Engin vandamál – bara lausnir

Frá upphafi hefur Vélsmiðjan Sveinn sérhæft sig í rennismíði og málmsmíði og í raun öllu sem viðkemur málmi. Verkefnin koma meðal annars frá framleiðslufyrirtækjum, landbúnaði, fiskvinnslu og byggingariðnaði.

„Við reddum öllu, sama hvort verkefnið er stórt eða smátt. Engin vandamál – bara lausnir.“

Persónuleg þjónusta er lykilatriði í rekstrinum. Eigandinn sjálfur tekur á móti viðskiptavininum og fylgir verkefninu eftir alla leið.

33 ár í baráttunni

Reksturinn hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Haraldur nefnir meðal annars stóra fjárfestingu í tölvustýrðum rennibekk árið 1999 og erfið ár í kringum hrunið.

Þrátt fyrir ýmsa skelli er eitt sem hann er sérstaklega stoltur af.

„Að hafa komist í gegnum 33 ár, haldið áfram og alltaf staðið í skilum.“

Framtíðarsýnin er einföld: að halda áfram á sömu braut, veita góða þjónustu og fá öfluga iðnaðarmenn til starfa.


FYRIRTÆKIÐ Í TÖLUM

Stofnað:
1993

Starfsmenn:
6–7

Staðsetning:
Flugumýri 6, Mosfellsbæ

Helsta þjónusta:
Allt sem viðkemur málmi

Stærsti markaður:
Framleiðslufyrirtæki og byggingariðnaður

Næstu markmið:
Halda áfram að veita góða þjónustu og fá góða iðnaðarmenn til starfa


HRAÐSPURNINGAR

Hvað þekkja Mosfellingar ykkur helst fyrir?
„Kallinn á horninu við Vesturlandsveginn – og að við reddum öllu.“

Hvað aðgreinir ykkur frá öðrum?
„Persónuleg þjónusta og lítið flækjustig.“

Af hverju eruð þið stoltust?
„Að hafa komist í gegnum 33 ára baráttu og alltaf staðið í skilum.“

Hvað mætti bæta í atvinnulífinu í Mosó?
„Sveitungar og fyrirtæki í bænum mættu vera duglegri að versla í heimabyggð.“

Hvar verður Vélsmiðjan eftir 3–5 ár?
„Vonandi á svipuðum stað, enn að veita sömu góðu þjónustuna.“

Birt í Mosfellingi 25. september 2026.