Laugardagur, 21. nóvember 2026
Forsíða
Íþróttir

Öflugt starf hjá karatedeild Aftureldingar

Öflugt starf hjá karatedeild Aftureldingar
2 mín. lestur
Facebook

Starfið hjá karatedeild Aftureldingar er komið á fullt á ný eftir sumarfrí og fjöldi iðkenda hefur snúið aftur auk þess sem ný andlit bættust í hópinn í haust. Deildin hefur á undanförnum árum skipað sér meðal öflugustu karatefélaga landsins og náð góðum árangri á mótum hér heima og erlendis.

Hjá deildinni starfar reynt þjálfarateymi en allir þjálfarar eru með svart belti, hafa lokið viðurkenndu skyndihjálparnámskeiði og eru með þjálfararéttindi ÍSÍ.

Afturelding á nú sex iðkendur í afrekshópi félagsins sem hafa reglulega barist um efstu sæti á mótum. Afrek síðasta vors standa sérstaklega upp úr.

Á Íslandsmeistaramóti barna og unglinga í kata átti Afturelding níu keppendur í hvorum aldursflokki og kom heim með glæsilegan verðlaunafeng. Alls unnu keppendur félagsins til fimm gullverðlauna, tveggja silfurverðlauna og fimm bronsverðlauna.

Keppendur stóðu sig vel og söfnuðu jafnframt dýrmætri reynslu sem mun nýtast þeim í áframhaldandi æfingum og keppni.

Tvenn silfurverðlaun á Miami Open

Raul Emilio náði einnig eftirtektarverðum árangri á alþjóðlega mótinu Miami Open sem fram fór dagana 16. og 17. maí í Florida Memorial-háskóla í Bandaríkjunum.

Mótið var haldið í 20. sinn og þar keppti sterkt alþjóðlegt karatefólk. Raul tók þátt bæði í einstaklingskata og kumite og gerði sér lítið fyrir og vann silfurverðlaun í báðum greinum.

Árangurinn var einstaklega góður og sýnir vel þá sterku stöðu sem karatedeild Aftureldingar hefur byggt upp á síðustu árum.

Nú þegar hauststarfið er komið á fullt er áfram mikill kraftur í deildinni og ljóst að spennandi keppnistímabil er fram undan hjá iðkendum Aftureldingar.


Birt í Mosfellingi 5. nóvember 2026.