Trjágróður á lóðarmörkum
Ágætu bæjarbúar.
Gangstéttir og göngustígar liggja víða um bæinn og eru mikilvæg til útivistar og samgangna milli staða, jafn fyrir gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk. Þegar trjágróður vex út fyrir lóðarmörk og út yfir gangstéttir og stíga bæjarins getur það skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir vegfarendur.
Einnig eru dæmi um það að trjágróður skyggi á umferðarmerki, götumerkingar og jafnvel lýsingu. Í tilfellum sem þessum er bæjaryfirvöldum heimilt að klippa og fjarlæga þann gróður er vex út fyrir lóðarmörk á kostnað lóðarhafa.
Reglur um gróður á einkalóðum eru skýrar. Í byggingarreglugerð er skýrt kveðið á um að lóðarhafa sé skylt að halda vexti trjáa og runna innan lóðarmarka. Ekki má planta hávöxnum trjátegundum nær lóðarmörkum aðliggjandi lóða en 4,0 metra og við lóðarmörk má hæð þeirra ekki verða meiri en 1,8 metrar, nema með samþykki nágranna. Trjágróður sem liggur að götu, gangstétt eða opnu svæði má ná meiri hæð ef fyrir liggur samþykki veghaldara eða umráðaaðila viðkomandi svæðis.
Garðeigendur í Mosfellsbæ eru hvattir til að klippa og snyrta allan þann gróður á lóðarmörkum og jafnframt að huga almennt að garðinum öllum og næsta umhverfi. Þar með talið eru bílhræ, tæki og tól í niðurníðslu sem eiga það til að safnast fyrir innan lóðarmarka.
Þannig getum við öll hjálpast að við að hafa bæinn okkar snyrtilegan og fallegan í allt sumar.
Bjarni Ásgeirsson
garðyrkjustjóri Mosfellsbæjar
Tómas G. Gíslason
umhverfisstjóri Mosfellsbæjar
Guðrún Birna Sigmarsdóttir
verkefnastjóri garðyrkjudeildar