Heimurinn er okkar – ný menntastefna Mosfellsbæjar
Heimurinn er okkar er heitið á nýrri menntastefnu Mosfellsbæjar sem hefur nú verið samþykkt af bæjarstjórn.
Lærdómssamfélagið í Mosfellsbæ kom að gerð stefnunnar og má nefna fulltrúa frá skóla- og frístundastarfi, börn, foreldra, starfsfólk, íbúa og kjörna fulltrúa.
Haldið var skólaþing í Helgafellsskóla, rafrænt íbúaþing, lögð fyrir viðhorfskönnun fyrir allt starfsfólk í skóla- og frístundastarfi og sérstaklega var rætt við börn í leikskóla.
Reglulega var vinnan kynnt og rædd í fræðslunefnd. Verkefnateymi sá um alla vinnu og framkvæmd stefnunnar en í teyminu sátu fulltrúar frá leikskólum, grunnskólum, frístund, Listaskóla og Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ.
Stefnan ber merki um mikinn metnað í skólastarfi og umhyggju fyrir nemendum og mun tryggja að Mosfellsbær verði áfram í fremstu röð í skólamálum.
Vöxtur, fjölbreytni, samvinna
Menntastefnan byggir á þremur stoðum en þær eru vöxtur, fjölbreytni og samvinna. Innan hverrar stoðar eru markmið og lykilorð. Aðaláherslan er á velferð og líðan nemenda en eins og fram kemur í stefnunni er „Öryggi og vellíðan eru undirstaða þess að börn blómstri í námi og leik. Því skal tryggja að börn fái tækifæri til þess að efla styrkleika sína og takast á við áskoranir í öruggu og hvetjandi umhverfi.“
Við innleiðingu stefnunnar er sett upp aðgerðaráætlun með mælaborði sem tekur til alls skóla- og frístundastarfs. Jafnframt mun hver og einn skóli setja upp aðgerðaráætlun sem birtist í framkvæmdaáætlun skólanna. Stefnan er sett upp með þeim hætti að auðvelt er að vinna með innihaldið á alla mögulega máta.
Innleiðing stefnunnar hefst næsta haust á nýju skólaári og verður formlega ýtt úr vör 23. september á sameiginlegum fræðsludegi grunn- og leikskóla í Mosfellsbæ.
Horft til Mosfellsbæjar í skólamálum
Skólamál eru mikilvægustu mál sveitarfélaganna og þar stendur Mosfellsbær sig einna best. Horft er til skólaþróunar í Mosfellsbæ því hér er framúrskarandi skólastarf og framúrskarandi starfsfólk. Við höfum mætt mikilli barnafjölgun með breytingum og farið ótroðnar slóðir.
Í bæinn hefur flutt metfjöldi barnafólks en hér eru engir biðlistar á leikskólum. Þann 1. apríl var búið að bjóða öllum börnum, sem fædd eru í ágúst 2021 eða fyrr, leikskólapláss í leikskólum bæjarins. Hvergi eru fleiri ungbarnapláss á leikskólum þar sem eins árs gömul börn fá þjónustu að loknu fæðingarorlofi foreldra.
Nýr grunnskóli, Helgafellsskóli, var byggður nú er leikskóli að fara í byggingu í sama hverfi. Ekkert sveitarfélag fór í jafn mikið átak í að láta skanna allt húsnæði og viðhald stofnana ávallt verið efst á blaði hjá umhverfissviði Mosfellsbæjar.
Börnin mikilvægust
Ég óska Mosfellingum til hamingju með nýja menntastefnu og vona að skólastarf megi blómstra áfram. Börnin í bænum eru mikilvægustu íbúarnir og veit ég að framtíðarbæjarstjórn mun tryggja að svo verði áfram.
Ég er ákaflega stolt að hafa fengið að sitja í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Mosfellsbæ og tekið þátt í að byggja upp bæinn og styðja við skólastarf á mesta uppbyggingartíma í sögu bæjarins. Ég þakka fyrir mig og kveð stjórnmálin í Mosfellsbæ og lít um leið stolt yfir farinn veg.
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður fræðslunefndar Mosfellsbæjar